Bílaleiga
International Car Rental ApS er bílaleiga í Danmörku sem eingöngu leigir út bíla til útlendinga, þ.e. þeirra sem ekki eiga heimilisfang í Danmörku. Fyrirtækið kaupir á hverju ári nýja toll- og skattfrjálsa bíla sem tryggir að viðskiptamenn fái ávallt nýja og ódýra bíla.
Á liðnum árum hafa þúsundir Íslendinga ekið árlega um vegi Danmerkur og Evrópu á bílum frá ICR. Þetta sýnir að þjónustu fyrirtækisins hefur verið vel tekið af Íslendingum. ICR gerir viðskiptavinum sem auðveldast fyrir og afgreiðir bíla við flugvelli á Jótlandi og á Fjóni. Á Sjálandi er afgreiðsla við Kastrup flugvöll og í miðborg Kaupmannahafnar.
UPPLÝSINGAR OG SKILMÁLAR
Afgreiðslugjöld á flugvöllum eru breytileg. Upplýsingar um þau er að finna í verðlistum.
Lágmarksaldur leigutaka er 23 ár. Auk þess geta 21 árs ökumenn fengið bíla gegn aukagjaldi.
Lágmarksleiga er 1 dagur og sé bíllinn tekinn kl. 12.00 skal honum skilað eigi síðar en kl. 12.29 næsta dag. Bílum má skila á öðrum stað en afgreiðslustað, sé samið um slíkt fyrirfram.
Greiðsluskilmálar eru:
- Euro/Visa kreditkort. Greiðist við afhendingu bílsins.
- Ekkert er greitt við pöntun og afpöntunargjald er ekkert.
Orlofsávísanir og ferðaávísun Mastercard.
******************************************
Við höfum samkomulag við fjölmörg verkalýðsfélög um að taka við orlofsávísum sem greiðslu og aðeins
þarf að senda okkur ávísun og andvirði verður lagt á reikning viðkomandi.
Ferðaávísun frá Mastercard er aðeins fyrir sérútvaldar ferðaskrifstofur og við erum ekki í þeim hópi.
Ótakmarkaður akstur, allar tryggingar, virðisaukaskattur, engin sjálfsábyrgð og afgreiðslugjald. (Aðeins þarf að greiða bensín og e.t.v. stöðumælasektir). Hægt er fá leigt staðsetningartæki ( GPS ) og kostar það dkr. 525.- pr. viku. Auk þess fylgir frítt danskt símakort ( GSM ) með 2ja vikna leigu. Rétt þykir að taka fram að bannað er að fara á þessum bílaleigubílum til Póllands, Ungverjalands, Tékklands og Slóvakíu.
Afgreiðsluskilmálar:
Viðskiptavinur pantar bifreið og fær staðfestingu um verð, afgreiðslutíma, stað og aðra skilmála.
Athugið:
- Pantið bílinn sem fyrst og fáið staðfestingu.
- Greiðsla er við móttöku.
- Staðfestingu á pöntun fylgja ókeypis ferðabæklingar.
Íslendingar búsettir i Danmörku. Sérstök tilkynning til ykkar.
Mér er stranglega bannað að leigja þessa bíla og á þessum verðum til Íslendinga sem eru búsettir í Danmörku og jafnframt er stranglega bannað að sækja bíla fyrir aðra og/eða skrá sig sem viðbótarbílstjóra. Verði ökumenn staðnir að akstri bílanna koma til stórsektir ásamt því sem viðkomandi er ótryggður komi eitthvað uppá. Þetta er vegna þess að bílarnir eru aðeins ætlaðir fólki búsett erlendis.
Pöntun eða fyrirspurn:












