Heimsmeistaramót íslenskra hesta 2007
Nú fer þetta að skella á - Landsliðið valið - og Hollendingar hafa gert allt klárt. Þeir lofuðu betra veðri en var í Svíþjóð og aðstaðan hjá þeim er öll til fyrirmyndar hjá þeim. Hestabúgarðurinn Breiðablik er mótsvæðið.
Talsvert hefur verið spurn um ferðir frá Amsterdam til Eindhoven. Lestarferð tekur um 1 1/2 klst og er beint frá flugvelli í Amsterdam til Eindhoven. Fargjaldið kostar um kr. 2.000.- ísl. kr. Því getur verið þægilegt að taka bara bílaleigubílinn í Eindhoven.
Stórborgin Eindhoven er í um 15 km fjarlægð frá mótsvæði. Fjölmargir gista í þrem hótelum á okkar
vegum - þ.e. Hotel Crown í miðborginni, Hótel Eindhoven og Hótel Pierre. Allt 4ra stjörnu hótel.
Ekki þarf að kvarta um veður í Hollandi sem hefur verið gott - þrátt fyrir mikla rigningu í Englandi.












