• Nyhavn
A A A
Veftré
Fylkir.is getur útvegað bílaleigubíla í Noregi og Svíþjóð.

Orlofshverfi


Yfirlit

Íbúðir í orlofshverfum er fjölskylduvænn dvalarstaður. flest orlofshverfi eru nálægt strönd og mjög fjölbreytt þjónusta er á svæðinu, svo sem sundlaugar, leikvellir fyrir börn, íþróttavellir, golfvellir, veitingahús og margt fleira.

Einn aðalkosturinn við íbúðir í orlofshverfum er sá að oft er hægt að fá íbúðirnar leigðar eftir þörfum hvers og eins, þ.e. ekki þarf að taka íbúðina á leigu frá laugardegi og ekki heldur í heilar vikur. Oftast er lágmarksdvöl þá tveir dagar.

Vinsamlegast kynnið ykkur hvaða staður myndi henta yður og skoðið þá möguleika sem við höfum í boði.

Hægt er að fá íbúðir um alla Danmörku.

Fyrirspurn:

Lalandia

Lalandia er langt stærsta orlofshverfi Danmerkur og það sem býður einhverja bestu aðstöðu fyrir fólk á öllum aldri. Þarna er hverskonar þjónusta í boði, stórglæsileg vatnaparadís, barnaskemmtigarður, íþróttasvæði, golfvellir, líkamsrækt og mörg veitingahús við allra hæfi. Íbúðir eru 3ja manna, 4ra manna, 5, 6 og 8 manna. Sérútbúin hús eru einnig í boði t.d. hjólastólavæn.

Fyrirspurn:

Dansk Folkeferie

Orlofshverfi sem rekin eru af dönsku verkalýðsfélögunum. Við bendum sérstaklega á Gilleleje, Karrebæksminde á Sjálandi og svo öll svæðin á Jótlandi. Karlslunde hefur þann kost helstan að Kaupmannahöfn er í aðeins 20 km. fjarlægð og Kastrup-flugvöllur í 24 km. fjarlægð. Strætisvagn stoppar við svæðið og svæðið mjög miðsvæðis til verslunar.

Fyrirspurn: