• nyhav
A A A
Veftré
Fylkir.is getur útvegað bílaleigubíla í Noregi og Svíþjóð.

Sumarhús

Við bjóðum sumarhús af öllum stærðum og gerðum víðsvegar í Danmörku. DanCenter a.s. hefur í boði um 7000 sumarhús um alla Danmörku, sem eru öll í einkaeign og DanCenter a.s. hefur leigumiðlun á. Fjölmargir Íslendingar hafa undanfarin ár notið sumarleyfis í Danmörku og haft góð kynni af sumarhúsum þar. Á s.l. ári voru um 2000 manns í sumarhúsum og bílaleigubílum sem við höfðum milligöngu um og gekk það í alla staði mjög vel.

Mjög auðvelt er að velja sumarhús og við auðveldum yður á allan hátt og veitum sem bestar upplýsingar beint. Við erum beintengd við tölvubúnað DanCenter a.s. og getum samstundis veitt upplýsingar um laus sumarhús og leitað að hentugu húsi. Hjá okkur er líka opið um helgar. Hægt er að panta samstundis.

Rétt þykir að taka fram að við pöntun á sumarhús,  sem er gerð beint af heimasíðu minni eða Dancenter´s,  þá er viðkomandi sumarhús tekið frá í  allt að  3 daga.   Þannig að þegar þið hafið fundið sumarhús við hæfi og viljið ekki missa húsið -  þá takið bara húsið frá og hafið samband við okkur um það.

Orlofsávísanir og  ferðaávísun  Mastercard.
******************************************

Við höfum samkomulag við fjölmörg verkalýðsfélög um þátttöku þeirra í leigukostnaði fyrir félagsmenn og
einnig þau sem greiða út með orlofsávísunum,  en önnur hafa þann hátt að þau greiða sinn hlut við  framlagningu á leigusamningi frá okkur.   Því er áríðandi að sumarhúsið sé skráð á leigutaka sem er félagsmaður í viðkomandi verkalýðsfélagi.

Ferðaávísun frá Mastercard er aðeins fyrir sérútvaldar ferðaskrifstofur og við erum ekki í þeim hópi.






Auðveldast er að velja og panta hús á eftirfarandi hátt:
  • Stærð húss og gerð þess.
    Þið segið okkur hve mörg rúm eða herbergi eiga að vera í húsinu. Takið fram t.d. hve mörg hjónaherbergi, hvort barnaherbergi megi vera með kojum eða rúmum.
  • Leigutímabil.
    Gefið upp leigutímabil. Húsin eru leigð frá laugardegi til laugardags.
  • Staðsetningu í Danmörku.
  • Verðhugmynd.
    Segið hve mikið húsið má kosta pr. viku.
Sendið eða hringið þessar upplýsingar og fáið samdægurs svör og tilboð.

GREIÐSLUSKILMÁLAR:
    25% við pöntun - (staðfestingu á pöntun)
    75% greiðist 30 dögum fyrir afhendingu.
Annað sem vert er að hafa í huga.
DanCenter a.s. hefur þjónustumiðstöðvar þar sem afhentir eru lyklar að sumarhúsum og þar er jafnframt;
  • Útleiga á sængurfatnaði, s.s. lök, koddaver, sængurver og svo handklæði. Barnarúm og barnastólar.
  • Leigugjald á sængurfatnaði er dkr.  70.-  fyrir lín,  en dkr.  120.-  fyrir  lín + handkl. og fleira 
  • Móttaka og skil á húslykli auk þess sem rafmagns- og vatnsnotkun er gerð upp við skil á húsi.
Við móttöku á lykli skal greiða tryggingargjald,
Þessi greiðsla er síðan endurgreidd við skil á lykli. Gert er ráð fyrir að leigjandi skili húsinu vel þrifnu. Tryggingargjald er dkr. 800,-

Ef leigjandi ætlar að koma á öðrum tíma en afgreiðslutíma þjónustumiðstöðvar, er komið til móts við það. hafið samband við okkur með góðum fyrirvara og við getum gert ráðstafanir til að sumarhúsið verði aðgengilegt jafnt að degi sem nóttu.

Í verðlista eru góðar upplýsingar um staðsetningu húss, búnað þess og fleira. Góðar aðkomulýsingar fylgja með pöntunarstaðfestingu.

Athugið að verð í lista eru í dkr. og þarf að bæta við 4% vegna forfallatryggingar, auk ísl. kr. 400 vegna bankayfirfærslugjalda.

Vinsamlegast athugið að sum eldri sumarhúsin, þ.e. þau sem byggð eru fyrir árið 1980 eru kannski ekki hús sem Íslendingar gera kröfu til. 

Fyrirspurn: