• egegege
A A A
Veftré
Fylkir.is getur útvegað bílaleigubíla í Noregi og Svíþjóð.

Kynning á Fylkir.is

Það var á árinu 1994 sem Fylkir Ágústsson hóf samstarf við bílaleigu í Danmörku og bauð mun ódýrari bílaleigubíla en áður þekktist. ICR aps, leigan sem staðsett er í Esbjerg, bauð eingöngu bíla fyrir útlendinga – þ.e. fólk sem bjó utan Danmerkur. Bíla sem eru keyptir toll- og skattfrjálsir, og voru í fyrstu eingöngu leigðir í viku hið minnsta. Þessi þjónusta varð strax mjög vinsæl og í kjölfarið bættist við áhugi á aukinni þjónustu, t.d. gistingu í Danmörk. Árið 1996 óskaði Dancenter a.s. sem er mjög umfangsmikið fyrirtæki í útleigu sumarhúsa, eftir samstarfi um leigu á sumarhúsum í Danmörku fyrir Íslendinga. Síðan var farið í rekstur ferðaskrifstofu árið 2000. Í fyrstu hét ferðaskrifstofan Fylkir – Bílaleiga ehf þar sem megin starfssemin var leiga á bílum. Árið 2005 var nafni fyrirtækisins breytt í Fylkir.is ferðaskrifstofa ehf.

Megin markmið ferðaskrifstofunnar er að vera “BEST Í DANMÖRKU” þó svo að ferðaskrifstofan útvegi sumarhús um alla Evrópu.

Fljótlega var einnig hafið samstarf við Íslendinga sem eru með heimagistingu í Danmörku og hefur það verið farsælt samstarf fyrir báða aðila. Við bendum viðskiptavinum okkar á að hafa beint samband við þessa aðila enda mælum við sérstaklega með viðskiptum við þá.

Dancenter a.s. er mjög stór aðili á sumarhúsamarkaðnum í Danmörku. Fyrirtækið býður til leigu sumarhús sem eru í eigu einstaklinga. Á árinu 2003 óskaði Dancenter a.s. eftir því við okkur að öll sumarhús sem Íslendingar pöntuðu hjá þeim yrðu afgreidd og þjónustuð í gegnum okkar ferðaskrifstofu. Þetta gerðu þeir af þeirri góðu reynslu sem þeir höfðu haft af okkur.

Á árinu 2003 hófst síðan þjónusta við hestamenn sem fóru á Heimsmeistaramót Íslenskra hesta, í Herning. Það samstarf tókst mjög vel og síðan höfum við þjónustað þá sem fóru á mótið 2005 í Svíþjóð og nú 2007 í Hollandi.

Fylkir Ágústsson er eini eigandi ferðaskrifstofunnar og er sérstaða hennar sú að hún er nánast eingöngu rekin á netinu og í gegnum síma. Viðskiptavinir geta valið sumarhús eða aðra þjónustu beint af heimasíðu ferðaskrifstofunnar.

Svo er það röddin hans Fylkis,   hann er svona rámur vegna þess að raddband er skaddað eftir uppskurð.  

Fylkir var ræðismaður Danmerkur á Ísafirði frá 30. apríl 1991 til  31. des.  2007,  
og var sæmdur Dannebrog orðu árið 2000 af Danadrottningu.

Fylkir.is ferðaskrifstofa ehf
kt. 630200-2530
Hraunbær 18
810 Hveragerði 

Sími:
456 3745

Banki:
0556-26-2530 IBAN IS08 0556 2600 2530 6302 0025 30
0556-14-100773 IBAN IS66 0556 1410 0773 6302 0025 30



Fylkir Ágústsson og eiginkona hans, Lára Haraldsdóttir ásamt 7 barnabörnum