A A A
Veftré
banner

Lalandia

Lalandia
Lalandia
Lalandia er staðsett við bæinn Rødby á Lollandi, sem er ferjubær yfir til Þýskalands. Frá Kaupmannahöfn er um 1 ½ klst. akstur beint í suður. Lalandia er stærsta orlofshverfið í Danmörku og geta rúmast þar um 3.000 manns í sumarhúsum af öllum stærðum og gerðum.

Fáir staðir eru jafn fjölskyldu- og barnavænir, stutt að fara í alla þjónustu sem nánar verður skýrð hér á öðrum síðum.

Eitt helsta aðdráttaraflið er hin stóra sundlaugarparadís þ.e. vatnagarður - sem er heil veröld út af fyrir sig. Þarna er hreint ótrúlegt tækifæri til dvalar, líkamsræktarstöð, golfvöllur, veitingarstaðir, verslun og hverskonar þjónusta. Þjónustuverið á svæðinu veitir síðan allar frekari upplýsingar og þar má fá leigðan sængurfatnað.

Fyrir þá sem eru í Lalandia er tilvalið að fara í dýragarðinn Knuthenborg og sjá þar öll helstu dýrin og ekki síður áhugavert að fara í skemmtigarðinn BonBonLand. Auk þessa þá sendum við upplýsingarbækling um Lolland til þeirra sem panta sumarhús hjá okkur.

Sumarhúsin í Lalandia eru raðhús og af stærðunum, 3ja manna, 4ra manna, 5 og 6 manna, og síðan tvær gerðir af 8 manna húsum þar sem önnur gerðin eru góð 2ja fjölskyldu hús. Auk þess er hægt að fá 4ra manna hús sem er hjólastólavænt.

Við bjóðumst til að útvega sumarhús í Lalandia, lágmarksdvöl er 2 dagar og engin sérstakur skiptidagur.




LALANDIA -   Billund

Á árinu opnar nýtt sumarhúsahverfi í Billund og  þjónustumiðstöð opnar 2009.

Þarna verða um 713 sumarhús  4ra til 8 manna hús og frábært umhverfi.

Við höfum tekið að okkur umboð fyrir þessi hús -  hverfið opnar  27. jún 2008

Hér er hægt að sjá frekari myndir af sumarhúsunum.