A A A
Veftré
banner

Sumarhús

Orlofshús í Lalandia
Orlofshús í Lalandia
« 1 af 4 »
Sumarhúsin í Lalandia er af mörgum stærðum og gerðum sem hentar flestum auk þess vel búin og í góðum umhverfi. Fyrir framan húsin er verönd og garður / leiksvæði. Svefnherbergi yfir á 1. eða 2. hæð og hægt að fá leigðan sængurfatnað í þjónustuveri. Hægt er að fá leigt barnarúm.
Barn yngra en 4ra ára má vera umfram hámarksfjölda í hús án aukagreiðslu. Við aðstoðum og veitum frekari upplýsingar fyrir val á hentugu sumarhúsi.

3ja manna hús. 50 ferm

Á efri hæð er hjónarúm í öðru herbergi og eitt rúm í hinu. Barnalæsing á stiga. Eldhús, borðstofa, setustofa niðri, WC og sturta allt niðri.

4ra manna hús. 56 ferm

Hjónaherbergi , eldhús, borðstofa, setustofa, WC og sturta allt á neðri hæð. Svefnloft fyrir tvo. Lóðréttur stigi upp á efri hæð.

5 manna hús. 67 ferm

Á efri hæð er herbergi með 3 rúmum og annað með rúmi og síðan á neðri hæð er eitt rúm ( sófi ) Eldhús, borðstofa, WC og sturta á neðri hæð.

6 manna hús - 69 ferm

Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, annað 3ja rúma og hitt hjónaherbergi. Á neðri hæð er síðan svefnsófi. Auk þess eldhús, borðstofa og WC / sturta.

8 manna hús. 77 ferm

Á efra lofti eru 2 rúm, en á neðri hæð eru síðan tvö hjónaherbergi og herbergi með 2 kojum.
Eldhús, borðstofa, WC / sturta á neðri hæð.
Hús með verönd.

8 manna LÚXUS hús. 103 ferm

Sérstaklega vandað lúxus sumarhús með sauna og nuddpotti. Á efri hæð eru 2 hjónaherbergi hvort með aukarúmi, og á neðri hæð er síðan eitt hjónaherbergi.
Eldhús, borðstofa, WC / sturta. Þvottavél og þurrkari.
Hús með verönd.