• nyhavn
A A A
Veftré
Fylkir.is getur útvegað bílaleigubíla í Noregi og Svíþjóð.

Veitingahús

Kaupmannahöfn
  • St. Gertuds Klostur Kaupmannahöfn
    Eitthvert vinsælasta veitingarhús Íslendinga í Kaupmannahöfn.
  • ”Hercegovina” í Tívolí - Kbh - m.a. frábært hlaðborð
    Veitingarhús í Tívoli sem býður frábært hlaðborð á kvöldin, og ekki síður frábært "julefrokost" hlaðborð. Getum pantað fyrir hópa
  • Wallmann
    Hér er um að ræða frábæra skemmtun í Cirkus byggingunni í miðbæ Kbh. Matur -söngur - og dans - Færbært fyrir hópa sem vilja skemmta sér saman. Getum útvegað borð fyrir hópa.
  • Litla Apotekið
    Þetta litla veitingarhús er mjög vinsælt af íslendingum.
  • Parnas
    Lítið huggulegt veitingarhús og er m.a. með "julefrokost - hlaðborð" Parnas er við sömu götu og aðalinngangurinn í Magasín.
  • Dansk Frokost St. Anna
    Þessi staður býður einna besta úrval af "ægte dansk frokost" í hádeginu. Staður í alfararleið þeirra sem eru á Strikinu og þar um hring. Staðettur í miðbænum.
  • Flakfortet
    Eins og Virkið. Þá er þetta frábær veitingastaður á eyju utan við Kaupmannahöfn.
  • Fuego. Argentínsk og músík
    Hvað með að fara á nautakjötsstað, hlusta á góða tónlist og njóta kvöldsins. Skoðið heimasíðu þeirra.
  • Josty - staður fyrir hópa
    Ef hópar ( 20 manns eða fleiri ) vilja góðan stað fyrir veislu má skoða þennan.
  • Nyhavnsferjukráin
    Nyhavn - býður uppá mikið og gott úrval síldarrétta í hádegi - ódýrt að borða þar.
  • Thorvaldsens hús
    Í miðbæ Kaupmannahafnar
  • Ástralskur staður í miðbæ Kaupmannahafnar
    Viljir þið fá framandi rétti, s.s. krókódílakjöt, kengúru, eða aðra rétti frá Ástralíu - prófið þennan. Þeir bjóða sal fyrir um 90 manns og einnig bjóða þeir hið frábæra nautakjöt frá Ástralíu.
Sjáland
  • De Hvide Svaner
    Hér má fá "ægte dansk frokost" í hádegi sunnudags fyrir lítinn pening. Bara að muna eftir að panta og mæta snemma. Frábær staður fyrir fjölskylduveislu aðra daga. Sérstaklega miðsvæðis fyrir sumarhúsagesti á Suður-Sjálandi
  • Fyrkro - Gilleleje - N - Sjáland
    Við mælum sérstaklega með því að sumarhúsgestir fari á Fyrkroen á laugardegi eða sunnudegi í "ægte dansk frokost" Ódýrt og gott - vinsælt. Biðjið um íslenska fána á borðið. Góður og ódýr veislumatur á kvöldin
  • Søstjernen - veitingarhús rekið af Íslendingum
    Veitingarhús í bænum Rågeleje. Fjöldi Íslendinga er í sumarhúsum á norður Sjálandi og ætti að heimasækja þennan stað.
Jótland / Fjón
  • Sdr. Bjert sveitahótel
    Lítið sveitahótel rétt sunnan við Kolding. Frábært fyrir Íslendinga í sumarhúsum að fara þarna eitt dag í veislu. Veitingarhús rekið af Íslendingum.
  • Veitingarhús - Billund svæðið
    Við mælum með þessu veitingarhúsi fyrir góðan kvöldverð.
Julefrokost
  • Virkið - eyja við Kaupmannahöfn
    Fyrir þá sem vilja smá spennandi upplifun og fara með ferju í smáeyju rétt utan Kaupmannahafnar.
  • Parnas
    Lítið veitingahús við hliðina á Magazin du Nord - gott hlaðborð og músik.
  • Hercegovina - Tivoli
    Þessi veitingastaður í Tívoli - gengið inn á móti aðaljárnbrautarstöð.
    Hjá þeim eru tveir/þrír möguleikar á julefrokost / buffet. Að koma í hádegi, og síðan tveir möguleikar að kveldi. Annarsvegar julefrokost af hlaðborði ( buffet ) og í innri sal er síðan skemmtun innifalið ásamt öllum drykkjarföngum.

    Pantið sjálf eða fáið aðstoð okkar við pöntun - mælum með þessum stað
  • Kaupmannahöfn
    Caféen i Nikolaj