• Nyhavn
A A A
Veftré
Fylkir.is getur útvegað bílaleigubíla í Noregi og Svíþjóð.

Vörur


GSM símakort

Símakort frá TDC
Símakort frá TDC
Má bjóða þér að hafa danskt GSM símanúmer í Danmerkurfríinu ?

Flestir hafa GSM símann með sér til Danmerkur og nota hann þar. Umtalsverður kostnaður er síðan í því að hringja innanlands, í nágranna sinn í næsta sumarhúsi eða í ferðafélaga sinn í Danmörk.

Séu tveir Íslendingar með GSM-símann í Danmörk og hringja sín á milli, þá greiðir sá sem hringir símtalið til Íslands, en sá sem hringt er í greiðir frá Íslandi til Danmerkur.

Nú býðst sérstök lausn á þessu máli !
TDC (áður TELE DANMARK)
býður ,,FRELSI" eða ,,FERÐAMANNASÍMANÚMER".

Start-pakkinn kostar dkr. 100.- og er innifalið símanúmer og símtöl. Síðan er hægt að fá á hverri bensínstöð í Danmörk "áfyllingu" fyrir dkr. 100.- og dkr. 200.-

Þetta er sáraeinfalt - þú kaupir "STARTPAKKE" og færð danskt símanúmeraspjald í GSMsímann þinn og getur síðan hringt innan Danmerkur á mun hagkvæmari hátt en að vera með íslenska símanúmerið.

Við bjóðum nú eftirfarandi;

1. MobilTid - startpakkann.
    Verð ísl.kr. 1.500.- pr. pakki frí sending sé greitt beint inn á bankareikning.
Helstu kostir þessa;
  • Það er sama verð hér og í Danmörku.
  • Látið þann sem hringir borga símtalið.
  • Þú færð danska símanúmerið áður en þú ferð í fríið og getur látið vini og ættingja vita um númerið.
  • Sé hópur að ferðast saman og/eða margir að fara á misjöfnum tíma má útbúa símaskrá fyrirfram fyrir hópinn.
  • Hægt er að semja um magnafslátt fyrir stóra hópa.

Sértilboð fyrir viðskiptavini okkar með bílaleigubíl/húsbíl og sumarhús
  • Þeir sem leigja bílaleigubíl innan við tvær vikur, eiga kost á símkorti á kr. 1.000.-
  • Þeir sem leigja bílaleigubíl í tvær vikur eða lengur, fá GSM símkort endurgjaldslaust og eiga kost á viðbótarkorti á kr. 1.000.-
  • Þeir sem leigja bílaleigubíl og sumarhús í a.m.k. viku eða lengur fá símakort endurgjaldslaust og eiga kost á viðbótarkorti á kr. 1.000.-


Afgreitt í Hafnarfirði.
Þeir sem þess óska geta fengið símakort og vegakort í Hafnarfirði, að Fögrukinn 30.

sími 555 2579 - Fagrakinn 30 er innsta húsið í götunni. Oftast einhver heima.


Vegakort

Vegakort 2008
Vegakort 2008
Má bjóða þér að hafa gott danskt vegakort í Danmerkurfríinu ?

Fjölmargir hafa óskað eftir að fá keypt gott vegakort til að hafa með sér í fríið og engin efi á að
þetta er vinsælasta vegakortið.

Nú höfum við gert samkomulag við framleiðanda góðs vegakorts í kvarða 1:200.000 í mjög handhægu broti, (gormabók) auk korts yfir alla vegi þá er þar bæjarkort ásamt fleiri upplýsingum.

Þetta kort seljum við á Kr. 2.000.- frí sending sé greitt beint á bankareikning.

Afgreiðsla í Hafnarfirði.

Þeir sem þess óska geta fengið vegakort og símakort í Hafnarfirði. Fögrukinn 30.
sími 555 2579. Fagrakinn 30 er innsta húsið í götunni og yfirleitt einhver heima.

Bækur

Gamla góða Kaupmannahöfn
Gamla góða Kaupmannahöfn
« 1 af 2 »
Gamla Góða Kaupmannahöfn.
Guðlaugur Arason hefur undanfarin ár leitt fróðleiksfúsa íslenska ferðalanga um Kaupmannahöfn innan gömlu borgarmúranna. Vinsældir þessara gönguferða sem hefjast á tröppum Ráðhússins hafa farið vaxandi með ári hverju, enda er Guðlaugur manna fróðastur um sögu okkar fornu höfuðborgar. Í bókinni greinir frá yfir 200 staða- og götuheitum og segir óborganlegar sögur af fólki, byggingum og aðstæðum, allt frá því menn héldu búfénaði í híbýlum sínum þar til lífsgæðakapphlaupið tók völdin. Ekki er síst eftirsóknavert að hlusta á frásagnir Guðlaugs af þekktum Íslendingum og dönsku hefðarfólki sem setti svip á samtíð sína og skringisögur sem vekja hlátur eða jafnvel hroll.

Gamla góða Kaupmannahöfn er í senn ferðahandbók, skemmtirit og sagnfræði - ómissandi fyrir alla sem vilja kynna sér og skoða borgina við Sundið.



Kaupmannahöfn - ekki bara Strikið er glæný og glóðvolg úr prentsmiðjunni. Henni var dreift í helstu bókaverslanir 9. maí. Þetta er einstaklega skemmtileg bók fyrir alla sem vilja skoða borgina við Sundið, hvort heldur sem er upp á eigin spýtur eða undir leiðsögn höfundarins, Guðlaugs Arasonar, sem er eftirsóttur leiðsögumaður íslenskra ferðamanna í Kaupmannahöfn á sumrin.

Hér lýsir Guðlaugur tíu gönguleiðum um borgina, útskýrir heiti gatna, lýsir staðháttum, sögulegum byggingum og minnist á þekkta einstaklinga sem tengjast þeim. Hverri gönguleið fylgir kort sem lýsir leiðinni og inn á þau eru merktir spennandi viðkomustaðir. Í lok bókar eru bráðskemmtilegar frásagnir um merkisstaði á gönguleiðunum, forvitnilega atburði og fólk sem hefur sett svip á bæjarlífið, ekki síst Íslendinga sem hafa búið í Höfn.