• nyhav
A A A
Veftré
Fylkir.is getur útvegađ bílaleigubíla í Noregi og Svíţjóđ.

Vörur


GSM símakort

Símakort frá TDC
Símakort frá TDC
Má bjóða þér að hafa danskt GSM símanúmer í Danmerkurfríinu ?

Flestir hafa GSM símann með sér til Danmerkur og nota hann þar. Umtalsverður kostnaður er síðan í því að hringja innanlands, í nágranna sinn í næsta sumarhúsi eða í ferðafélaga sinn í Danmörk.

Séu tveir Íslendingar með GSM-símann í Danmörk og hringja sín á milli, þá greiðir sá sem hringir símtalið til Íslands, en sá sem hringt er í greiðir frá Íslandi til Danmerkur.

Nú býðst sérstök lausn á þessu máli !
TDC (áður TELE DANMARK)
býður ,,FRELSI" eða ,,FERÐAMANNASÍMANÚMER".

Start-pakkinn kostar dkr. 100.- og er innifalið símanúmer og símtöl. Síðan er hægt að fá á hverri bensínstöð í Danmörk "áfyllingu" fyrir dkr. 100.- og dkr. 200.-

Þetta er sáraeinfalt - þú kaupir "STARTPAKKE" og færð danskt símanúmeraspjald í GSMsímann þinn og getur síðan hringt innan Danmerkur á mun hagkvæmari hátt en að vera með íslenska símanúmerið.

Við bjóðum nú eftirfarandi;

1. MobilTid - startpakkann.
    Verð ísl.kr. 1.500.- pr. pakki frí sending sé greitt beint inn á bankareikning.
Helstu kostir þessa;
  • Það er sama verð hér og í Danmörku.
  • Látið þann sem hringir borga símtalið.
  • Þú færð danska símanúmerið áður en þú ferð í fríið og getur látið vini og ættingja vita um númerið.
  • Sé hópur að ferðast saman og/eða margir að fara á misjöfnum tíma má útbúa símaskrá fyrirfram fyrir hópinn.
  • Hægt er að semja um magnafslátt fyrir stóra hópa.

Sértilboð fyrir viðskiptavini okkar með bílaleigubíl/húsbíl og sumarhús
  • Þeir sem leigja bílaleigubíl innan við tvær vikur, eiga kost á símkorti á kr. 1.000.-
  • Þeir sem leigja bílaleigubíl í tvær vikur eða lengur, fá GSM símkort endurgjaldslaust og eiga kost á viðbótarkorti á kr. 1.000.-
  • Þeir sem leigja bílaleigubíl og sumarhús í a.m.k. viku eða lengur fá símakort endurgjaldslaust og eiga kost á viðbótarkorti á kr. 1.000.-


Afgreitt í Hafnarfirði.
Þeir sem þess óska geta fengið símakort og vegakort í Hafnarfirði, að Fögrukinn 30.

sími 555 2579 - Fagrakinn 30 er innsta húsið í götunni. Oftast einhver heima.