Bækur
Gamla Góða Kaupmannahöfn.
Guðlaugur Arason hefur undanfarin ár leitt fróðleiksfúsa íslenska ferðalanga um Kaupmannahöfn innan gömlu borgarmúranna. Vinsældir þessara gönguferða sem hefjast á tröppum Ráðhússins hafa farið vaxandi með ári hverju, enda er Guðlaugur manna fróðastur um sögu okkar fornu höfuðborgar. Í bókinni greinir frá yfir 200 staða- og götuheitum og segir óborganlegar sögur af fólki, byggingum og aðstæðum, allt frá því menn héldu búfénaði í híbýlum sínum þar til lífsgæðakapphlaupið tók völdin. Ekki er síst eftirsóknavert að hlusta á frásagnir Guðlaugs af þekktum Íslendingum og dönsku hefðarfólki sem setti svip á samtíð sína og skringisögur sem vekja hlátur eða jafnvel hroll.
Gamla góða Kaupmannahöfn er í senn ferðahandbók, skemmtirit og sagnfræði - ómissandi fyrir alla sem vilja kynna sér og skoða borgina við Sundið.
Kaupmannahöfn - ekki bara Strikið er glæný og glóðvolg úr prentsmiðjunni. Henni var dreift í helstu bókaverslanir 9. maí. Þetta er einstaklega skemmtileg bók fyrir alla sem vilja skoða borgina við Sundið, hvort heldur sem er upp á eigin spýtur eða undir leiðsögn höfundarins, Guðlaugs Arasonar, sem er eftirsóttur leiðsögumaður íslenskra ferðamanna í Kaupmannahöfn á sumrin.
Hér lýsir Guðlaugur tíu gönguleiðum um borgina, útskýrir heiti gatna, lýsir staðháttum, sögulegum byggingum og minnist á þekkta einstaklinga sem tengjast þeim. Hverri gönguleið fylgir kort sem lýsir leiðinni og inn á þau eru merktir spennandi viðkomustaðir. Í lok bókar eru bráðskemmtilegar frásagnir um merkisstaði á gönguleiðunum, forvitnilega atburði og fólk sem hefur sett svip á bæjarlífið, ekki síst Íslendinga sem hafa búið í Höfn.