Hvað er Abler?
Fáðu yfirsýn yfir starfið með Abler appinu
Allar skráningar í íþróttastarf Fylkis fara í gegnum Abler, öflugt kerfi sem heldur utan um æfingagjöld, æfingatíma, viðburði og samskipti við þjálfara og aðra iðkendur.
Í Abler appinu færðu skýra yfirsýn yfir allt sem tengist þínu starfi, hvort sem það eru æfingatímar, skráningar á viðburði eða mót eða samskipti við þjálfara/forráðamenn. Með tilkynningum færðu strax upplýsingar um það sem skiptir þig máli.
Við hvetjum alla iðkendur og forráðamenn til að sækja appið en hægt er líka að skrá og fylgjast með í gegnum abler.io.


