VIÐ ERUM ÁRBÆR

Skráðu þig í starf Fylkis

Íþróttafélagið Fylkir starfrækir fjölbreyttar íþróttadeildir fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Hjá félaginu eru 9 íþróttagreinar í boði fyrir einstaklinga á öllum aldri, frá 2 ára iðkendum upp í 95 ára..

Hver deild sinnir öflugu íþróttastarfi með þjálfurum, sjálfboðaliðum, æfingum og viðburðum allt árið um kring.

Við bjóðum þér hjartanlega velkomin í félagið okkar allra.

Fylkir býður upp á leigu á fjölbreyttum rýmum sem henta bæði fyrirtækjum og einstaklingum. Allt frá barnaafmælum og fermingum yfir í ráðstefnur, fundi, árshátíðir og brúðkaup.

Við erum með 6 rými af mismunandi stærðum og gerðum sem hægt er að sníða að þínum þörfum.

Viðburðir & fundir hjá Fylki

Blálýst herbergi með glóandi gólfskjá, stól og hvítum stólum meðfram veggnum.
Veislusalur með kringlóttum borðum og gestum sem snúa að upplýstu sviði að framan

Þann 28. maí 2027 mun Íþróttafélagið Fylkir fagna stórum áfanga þegar félagið verður 60 ára.

Í tilefni af afmælinu mun Fylkir gefa út bók um sögu félagsins sem Víðir Sigurðsson skrifar. Við leitum því til ykkar sem tengjast eða hafa tengst félaginu og biðjum ykkur að deila með okkur góðum sögum, minningum eða atvikum úr sögu Fylkis.

Ef þú átt einnig myndir sem þér finnst eiga heima í bókinni, þá hvetjum við þig til að senda okkur skilaboð.

Saga Fylkis í 60 ár

Mynd af kylfingi með bikar í skrautlegum ramma við hliðina á textanum „Fulgir í 60 ár“
Maður heldur á snjallsíma sem sýnir fréttaapp, með óskýrt andlit í bakgrunni.

Fáðu yfirsýn yfir starfið með Abler appinu

Allar skráningar í íþróttastarf Fylkis fara í gegnum Abler, öflugt kerfi sem heldur utan um æfingagjöld, æfingatíma, viðburði og samskipti við þjálfara og aðra iðkendur.

Í Abler appinu færðu skýra yfirsýn yfir allt sem tengist þínu starfi, hvort sem það eru æfingatímar, skráningar á viðburði eða mót eða samskipti við þjálfara/forráðamenn. Með tilkynningum færðu strax upplýsingar um það sem skiptir þig máli.

Við hvetjum alla iðkendur og forráðamenn til að sækja appið en hægt er líka að skrá og fylgjast með í gegnum abler.io.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 10. nóvember 2026
Knattspyrnudeild Fylkis hefur gengið frá ráðningu Arons Baldvins Þórðarsonar sem nýs aðalþjálfara meistaraflokks karla. Aron hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið og tekur þegar við starfinu. Aron er uppalinn Fylkismaður og þekkir því félagið vel. Hann er 31 árs gamall og lék upp alla yngri flokka félagsins áður en hann lék með meistaraflokki árið 2014. Síðasta tímabil sitt sem leikmaður lék hann með Elliða, venslaliði Fylkis, árið 2017. 🗣️ Aron Baldvin, við undirskrift: Þetta er bara draumur að rætast fyrir mig. Ég er náttúrlega mikill Fylkismaður og hef verið það alla tíð. Ég var ungur strákur á Fylkispöllunum í stuðningsmannasveit Kidda Tomm og það hefur alltaf verið sérstök tenging hjá mér við félagið. Að fá núna tækifæri til að þjálfa uppeldisfélagið sitt er bara mikil forréttindi og mikið stolt. Ég veit hvað Fylkir skiptir mig miklu máli og það verður lagt allt í sölurnar fyrir félagið. Ég hlakka ótrúlega mikið til þess að byrja, Þrátt fyrir ungan aldur hefur Aron byggt upp öflugan þjálfaraferil og skipað sér sess sem einn af efnilegri þjálfurum landsins. Hann hefur starfað hjá Víkingi frá árinu 2019 og verið hluti af þjálfarateymi meistaraflokks frá árinu 2022 undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar. Árið 2024 tók hann við starfi aðstoðarþjálfara liðsins þegar Sölvi Geir Ottesen tók við sem aðalþjálfari. Ráðningin markar nýjan kafla í þjálfaraferli Arons en þetta er hans fyrsta starf sem aðalþjálfari meistaraflokks. Knattspyrnudeild Fylkis bindur miklar vonir við ráðningu Arons og hlakkar til samstarfsins. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá uppalinn Fylkismann aftur heim í Árbæinn og taka saman næstu skref í uppbyggingu meistaraflokks karla. Velkominn heim, Aron! 🧡🖤

Hvað er að frétta?

Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 4. nóvember 2026
Máni Austmann Hilmarsson, 28 ára sóknarmaður, hefur ákveðið að leggja skóna frægu á hilluna eftir farsælan feril í íslenskri knattspyrnu. Máni lék með yngri landsliðum Íslands á sínum ferli og hefur meðal annars klæðst treyjum Stjörnunnar, ÍR, HK, Leiknis R., FH og Fjölnis áður en hann gekk til liðs við Fylki í júlí 2025. Á þeim tíma sem Máni lék með Fylki kom hann alls við sögu í 43 leikjum og skoraði 10 mörk. Þar af lék hann 35 leiki á nýliðnu tímabili og gegndi mikilvægu hlutverki í liðinu. 🗣️ Máni með kveðju: Takk fyrir mig, Fylkir! Ég hef átt margar góðar stundir hér og kynnst fullt af góðu fólki. Takk til liðsfélaga, þjálfara, starfsfólks og stuðningsmanna fyrir tímann saman. Ég óska ykkur alls hins besta og mun fylgjast vel með áfram!“ 🧡 Knattspyrnudeild Fylkis þakkar Mána kærlega fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum alls hins besta í þeim verkefnum sem fram undan eru.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 30. október 2026
Kristófer Sigurgeirsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla síðastliðin tvö tímabil hefur nú kvatt félagið. Kristófer var ráðinn til Fylkis í nóvember 2024 samhliða ráðningu Árna Freys, sem tók þá við sem aðalþjálfari liðsins. Kristófer kom inn sem aðstoðarþjálfari en tók jafnframt að sér mikilvæg verkefni á sviði afreksþjálfunar og þjálfunar 2. flokks karla. Þá lék hann lykilhlutverk í aðlögun ungra leikmanna sem voru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki karla. 🗣️ Skilaboð frá Kristófer Ég vil nýta tækifærið og þakka leikmönnum, stjórn, ráðum, starfsfólki og stuðningsfólki Fylkis kærlega fyrir þann tíma sem ég hef átt hjá félaginu. Tíminn hjá Fylki hefur verið einstaklega ánægjulegur og lærdómsríkur og ég er afar þakklátur fyrir allar þær góðu stundir sem ég hef upplifað á þessum tíma. Ég óska félaginu, leikmönnum og öllum þeim sem starfa innan þess alls hins besta í framtíðinni. Á þeim tveimur árum sem Kristófer starfaði hjá Fylki vann hann með þremur aðalþjálfurum, fyrst Árna Frey, síðar Arnari Grétarssyni og síðast Heimi Guðjónssyni. Undir stjórn Heimis og Kristófers varð karlalið Fylkis Lengjubikarmeistari á nýliðnu tímabili og náði jafnframt eftirtektum árangri í sumar með liðið, þar sem liðið var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í Bestu deildinni og komst í úrslitaleik Mjólkurbikars karla. Við þökkum Kristófer innilega fyrir störf hans og framlag til félagsins undanfarin tvö ár og óskum honum alls hins besta í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 10. nóvember 2026
Knattspyrnudeild Fylkis hefur gengið frá ráðningu Arons Baldvins Þórðarsonar sem nýs aðalþjálfara meistaraflokks karla. Aron hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið og tekur þegar við starfinu. Aron er uppalinn Fylkismaður og þekkir því félagið vel. Hann er 31 árs gamall og lék upp alla yngri flokka félagsins áður en hann lék með meistaraflokki árið 2014. Síðasta tímabil sitt sem leikmaður lék hann með Elliða, venslaliði Fylkis, árið 2017. 🗣️ Aron Baldvin, við undirskrift: Þetta er bara draumur að rætast fyrir mig. Ég er náttúrlega mikill Fylkismaður og hef verið það alla tíð. Ég var ungur strákur á Fylkispöllunum í stuðningsmannasveit Kidda Tomm og það hefur alltaf verið sérstök tenging hjá mér við félagið. Að fá núna tækifæri til að þjálfa uppeldisfélagið sitt er bara mikil forréttindi og mikið stolt. Ég veit hvað Fylkir skiptir mig miklu máli og það verður lagt allt í sölurnar fyrir félagið. Ég hlakka ótrúlega mikið til þess að byrja, Þrátt fyrir ungan aldur hefur Aron byggt upp öflugan þjálfaraferil og skipað sér sess sem einn af efnilegri þjálfurum landsins. Hann hefur starfað hjá Víkingi frá árinu 2019 og verið hluti af þjálfarateymi meistaraflokks frá árinu 2022 undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar. Árið 2024 tók hann við starfi aðstoðarþjálfara liðsins þegar Sölvi Geir Ottesen tók við sem aðalþjálfari. Ráðningin markar nýjan kafla í þjálfaraferli Arons en þetta er hans fyrsta starf sem aðalþjálfari meistaraflokks. Knattspyrnudeild Fylkis bindur miklar vonir við ráðningu Arons og hlakkar til samstarfsins. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá uppalinn Fylkismann aftur heim í Árbæinn og taka saman næstu skref í uppbyggingu meistaraflokks karla. Velkominn heim, Aron! 🧡🖤
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 4. nóvember 2026
Máni Austmann Hilmarsson, 28 ára sóknarmaður, hefur ákveðið að leggja skóna frægu á hilluna eftir farsælan feril í íslenskri knattspyrnu. Máni lék með yngri landsliðum Íslands á sínum ferli og hefur meðal annars klæðst treyjum Stjörnunnar, ÍR, HK, Leiknis R., FH og Fjölnis áður en hann gekk til liðs við Fylki í júlí 2025. Á þeim tíma sem Máni lék með Fylki kom hann alls við sögu í 43 leikjum og skoraði 10 mörk. Þar af lék hann 35 leiki á nýliðnu tímabili og gegndi mikilvægu hlutverki í liðinu. 🗣️ Máni með kveðju: Takk fyrir mig, Fylkir! Ég hef átt margar góðar stundir hér og kynnst fullt af góðu fólki. Takk til liðsfélaga, þjálfara, starfsfólks og stuðningsmanna fyrir tímann saman. Ég óska ykkur alls hins besta og mun fylgjast vel með áfram!“ 🧡 Knattspyrnudeild Fylkis þakkar Mána kærlega fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum alls hins besta í þeim verkefnum sem fram undan eru.

VEFVERSLUNIN OKKAR

14.990 ISK

Andlitsmynd af íþróttamanni með húðflúr í appelsínugulum og svörtum treyju, standandi á hvítum bakgrunni.
Heimatreyja 25/26┃Fullorðnir

14.990 ISK

Svart og hvítt íþróttatreyja með abstraktmynstri, bleikum ermum og merki að framan
Varatreyja 25/26┃Fullorðnir

8.990 ISK

Maður í appelsínugulum íþróttagalla stendur með krosslagða hendur á hvítum bakgrunni.
Fylkis hettupeysa

2.990 ISK

Appelsínugular íþróttavatnsflaska með svörtum tappa og svörtu merki á hvítum bakgrunni
Fylkisbrúsi

Fylkir er á Almannaheillaskrá

Það þýðir að þú styrkir okkur skattfrjálst!

Einstaklingur getur fengið skattfrádrátt (lækkun á tekjuskattsstofni) allt að 350.000 kr. á ári, vegna gjafa og framlaga til félaga sem skráð eru á almannaheillaskrá Skattsins. Ef þú vilt lesa nánar um þetta þá eru nánari upplýsingar getur þú ýtt á takkann hér að neðan!

Glósteinn
Eykt
Coca cola
Macron
Tekk
Glósteinn
Eykt
Coca cola
Macron
Tekk