Heimir Guðjónsson lætur af störfum hjá Fylki


By Jakob Örn Heiðarsson • 28. október 2026

Knattspyrnudeild Fylkis og Heimir Guðjónsson hafa komist af samkomulagi um að Heimir láti af störfum sem aðalþjálfari meistaraflokks karla frá og með deginum í dag.


Í lok október 2025 tilkynntum við um ráðningu Heimis sem þjálfara Fylkis til næstu tveggja ára. Samningurinn milli aðila gerði ekki ráð fyrir heimild til uppsagnar.


Við lítum stolt um öxl þegar við horfum til tímabilsins 2026 þó svo að megin markmiðið að tryggja okkur réttinn til að spila í Bestu deild 2027 hafi ekki náðst. Fylkir vann Lengjubikarinn sl. vor, við lékum til undanúrslita í Mjólkurbikarkeppni KSÍ og heilt yfir voru miklar framfarir á liðinu frá fyrra ári. Stuðningurinn við Fylki í úrslitakeppninni í september var framúrskarandi og þar eiga stuðningsmenn Fylkis mikið hrós skilið.


Í fjölmiðlum og hlaðvörpum hefur nafn Heimis ítrekað verið tengt við önnur félög á undanförnum mánuðum. Eftir rót síðustu vikna er það mat stjórnar Knattspyrnudeildar Fylkis að hagsmunum Fylkis sé best þjónað með slitum á samstarfinu við Heimi Guðjónsson.


Við þökkum Heimi fyrir hans framlag til Fylkis og óskum honum velfarnaðar.


Stjórn deildarinnar og meistaraflokksráð er staðráðið að byggja á þeim góða grunni sem er til staðar hjá Fylki. Leit að nýjum aðalþjálfara karlaliðs Fylkis er hafin.


GLEÐI VIRÐING METNAÐUR

- Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis


Skráðu þig á póstlista Fylkis

Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð

Contact Us

Deildu þessari frétt

Allar fréttir

Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 22. október 2026
Tillögur að breytingum á reglugerð knattspyrnudeildar Fylkis
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar.  Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Önnur mál
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 14. september 2026
Úrslitastund á Laugardalsvelli gegn Þrótturum 🧡
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 24. ágúst 2026
Síldarveisla Fylkis fyrir síðasta heimaleikinn!
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 20. ágúst 2026
Skráning er hafin fyrir nýtt tímabil hjá Betri borgurum
Eftir Jakob Fylkir • 26. júlí 2026
Skrifar undir samning út tímabilið 2026
Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður • 15. júní 2026
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar […] The post Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis FC á appelsínugulum lituðum bakgrunni með svörtum og hvítum hringlaga merki.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […] The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.