Úrslitaleikur - Mikilvægar upplýsingar
Jakob Örn Heiðarsson • 14. september 2026

Úrslitastund á Laugardalsvelli gegn Þrótturum 🧡

Kæru stuðningsmenn,


Nú er komið að stóru stundinni. Við spilum til úrslita um sæti í Bestu deildinni árið 2027!

Frábærri viðureign við HK er lokið og næstu keppinautar okkar eru Þróttarar. Nú tekur við einn stærsti leikur tímabilsins þegar liðin mætast á Laugardalsvelli næstkomandi laugardag.


Uppfærður Leiktími

Leiktími leiksins hefur verið færður um 15 mínútur. Upphaflega átti leikurinn að hefjast kl. 16:00 en kick-off verður nú kl. 16:15.


Þar sem leikurinn fer fram á Laugardalsvelli er miðasalan og umgjörðin í kringum leikinn með svipuðu fyrirkomulagi og þekkist frá bikarúrslitaleikjum, landsleikjum og öðrum stórum KSÍ-leikjum.


Fylkisbúðin

Verður opin í Tekk-vellinum á fimmtudaginn milli kl. 17:00–19:00 þar sem hægt verður að kaupa Fylkisvarning fyrir úrslitaleikinn. Þá minnum við einnig á vefverslun Fylkis fyrir þá sem komast ekki í búðina, en hægt er að sækja pantanir í Fylkishöll.

https://stubb.is/fylkir/shop


🎟️ Miðasala

Miðasala á leikinn hefst á morgun, þriðjudaginn 15. september kl. 12:00, í gegnum miðasöluvef KSÍ og KSÍ-appið.


Þar sem leikurinn er sérstakur úrslitaleikur sem KSÍ heldur í samstarfi við ÍTF munu árskort ekki gilda á leikinn eins og með hefðbundna deildarleiki.


Þar sem Fylkir er „úti“ liðið í þessum leik eftir hlutkesti verða stuðningsmenn Fylkis í sunnanverðri stúkunni, nær Þróttarheimilinu.


Miðaverð:

  • Fullorðnir, 17 ára og eldri: 2.500 kr. í forsölu - 3.500 kr. í almennri sölu
  • Börn, 16 ára og yngri: 500 kr.

Forsala á fullorðinsmiðum gildir til kl. 23:59 fimmtudaginn 17. september, áður en miðaverð hækkar aðfaranótt föstudagsins 18. september. Miðaverðið hækkar þá um 1.000 kr. og kostar 3.500 kr. frá þeim tíma og fram að kick-off.




⚠️ Mikilvægar upplýsingar

Vegna þess að um stóran KSÍ leik er að ræða verður aukin öryggisgæsla á Laugardalsvelli.

Við viljum því minna stuðningsmenn á eftirfarandi:

  • Blys, flugeldar, konfettisprengjur og hvers kyns flugeldatækni eru stranglega bönnuð og verða slíkir hlutir gerðir upptækir við inngang.
  • Ekki er heimilt að koma með mat eða drykki inn á vallarsvæðið. Veitingasala verður á vellinum með mat og þá verður áfengir drykkir einnig seldir.
  • KSÍ áskilur sér rétt til að skoða töskur og muni sem gestir hafa meðferðis. Gestum sem neita skoðun getur verið neitað um aðgang.


Við hvetjum því alla til að kynna sér og virða þær reglur sem settar hafa verið til að forðast óþarfa leiðindi á leikdegi og skapa góða stemningu fyrir alla.


🧡 Upphitun fyrir leik

Knattspyrnudeild Fylkis vinnur nú hörðum höndum að því að skipuleggja stuðningsmannahitting fyrir leikinn á laugardag. Dagskráin er enn í undirbúningi og verður hún auglýst um leið og hún er fullkláruð.


Takið því frá allan laugardaginn! Við ætlum að hefja upphitun nokkrum klukkutímum fyrir leik og mæta svo saman á Laugardalsvöllinn til að styðja strákana í þessum gríðarlega mikilvæga leik.


Einn leikur. Eitt markmið. Eitt sæti laust í Bestu deildina. 🧡

Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 28. október 2026
Knattspyrnudeild Fylkis og Heimir Guðjónsson hafa komist af samkomulagi um að Heimir láti af störfum sem aðalþjálfari meistaraflokks karla frá og með deginum í dag. Í lok október 2025 tilkynntum við um ráðningu Heimis sem þjálfara Fylkis til næstu tveggja ára. Samningurinn milli aðila gerði ekki ráð fyrir heimild til uppsagnar. Við lítum stolt um öxl þegar við horfum til tímabilsins 2026 þó svo að megin markmiðið að tryggja okkur réttinn til að spila í Bestu deild 2027 hafi ekki náðst. Fylkir vann Lengjubikarinn sl. vor, við lékum til undanúrslita í Mjólkurbikarkeppni KSÍ og heilt yfir voru miklar framfarir á liðinu frá fyrra ári. Stuðningurinn við Fylki í úrslitakeppninni í september var framúrskarandi og þar eiga stuðningsmenn Fylkis mikið hrós skilið. Í fjölmiðlum og hlaðvörpum hefur nafn Heimis ítrekað verið tengt við önnur félög á undanförnum mánuðum. Eftir rót síðustu vikna er það mat stjórnar Knattspyrnudeildar Fylkis að hagsmunum Fylkis sé best þjónað með slitum á samstarfinu við Heimi Guðjónsson. Við þökkum Heimi fyrir hans framlag til Fylkis og óskum honum velfarnaðar. Stjórn deildarinnar og meistaraflokksráð er staðráðið að byggja á þeim góða grunni sem er til staðar hjá Fylki. Leit að nýjum aðalþjálfara karlaliðs Fylkis er hafin. GLEÐI VIRÐING METNAÐUR - Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 22. október 2026
Tillögur að breytingum á reglugerð knattspyrnudeildar Fylkis
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar. Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Breyting á reglugerð knattspyrnudeildar, sjá nánar hér - Önnur mál
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 24. ágúst 2026
Síldarveisla Fylkis fyrir síðasta heimaleikinn!
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 20. ágúst 2026
Skráning er hafin fyrir nýtt tímabil hjá Betri borgurum
Eftir Jakob Fylkir • 26. júlí 2026
Skrifar undir samning út tímabilið 2026
Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður • 15. júní 2026
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar […] The post Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis FC á appelsínugulum lituðum bakgrunni með svörtum og hvítum hringlaga merki.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […] The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.
Show More