
Breyting á Reglugerð - Knattspyrnudeild
By Jakob Örn Heiðarsson • 22. október 2026
Tillögur að breytingum á reglugerð knattspyrnudeildar Fylkis
Hvaða breytingar eru lagðar til?
Lagt er til að breytingar verði gerðar á 3., 4., 5. og 7. gr. reglugerðar knattspyrnudeildar. Hér fyrir neðan má sjá helstu atriði sem tillögurnar taka til.
3. gr. – Stjórn deildarinnar og hlutverk hennar
Tillögurnar taka meðal annars til skipunar stjórnar deildarinnar, ábyrgðar hennar á fjárhagsáætlun og samþykktarferlis hennar.
4. gr. – Stjórnarkjör
Lagt er til að ákvæði um stjórnarkjör, kosningu stjórnarmanna og skipan stjórnar verði endurskoðuð.
5. gr. – Aðalfundur knattspyrnudeildar
Lagt er til að ákvæði um aðalfund, atkvæðisrétt, tillögur að reglugerðarbreytingum og framkvæmd fundarins verði uppfærð.
7. gr. – Gildistaka
Lagt er til að ákvæði um gildistöku reglugerðarinnar verði uppfært til samræmis við fyrirhugaðar breytingar.
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér tillögurnar fyrir aðalfundinn.
Tillögur að breytingum á reglugerð knattspyrnudeildar eru birtar með sjö daga fyrirvara fyrir aðalfund, í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar. Tillögurnar verða lagðar fyrir aðalfund knattspyrnudeildar þann 29. október næstkomandi til afgreiðslu.
Aðalfundur knattspyrnudeildar Fylkis fer fram miðvikudaginn 29. október kl. 19:30. Á fundinum verða lagðar fram tillögur að breytingum á reglugerð deildarinnar.
Hér að neðan má nálgast reglugerðina með fyrirhuguðum breytingum, þar sem breytingar á núverandi ákvæðum eru merktar sérstaklega.
Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir










