Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár

Jakob Örn Heiðarsson • 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en nú mun Víðir taka við keflinu og klára verkið. Kjartani Gunnari eru færðar bestu þakkir fyrir sitt framlag.
Víðir mun hefja störf 1.júlí og er áætlað að bókin komi út fyrir 60 ára afmæli félagsins sem verður 28.maí 2027.
Meðfylgjandi mynd er af Víði Sigurðssyni og Birni Gíslasyni við undirskrift samningsins.
Þeir félagsmenn sem luma á skemmtilegu efni eða myndum sem gætu átt erindi í bókina eru beðnir um að hafa sambandi við skrifstofu Fylkis eða senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar. Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Önnur mál

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […]
The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.

Eftir Hörður
•
5. maí 2026
Nýverið sendi knattspyrnudeild Fylkis valkröfu í heimabanka flestra íbúa í 110 þar sem við óskum eftir styrkjum til að lyfta öllu starfi félagsins áfram á hærra stig og skiptir þar engu […]
The post Ákall til 110 – Enginn getur allt en allir geta eitthvað. appeared first on Fylkir.






