Aron Baldvin Þórðarson nýr aðalþjálfari Fylkis
By Jakob Örn Heiðarsson • 10. nóvember 2026
Knattspyrnudeild Fylkis hefur gengið frá ráðningu Arons Baldvins Þórðarsonar sem nýs aðalþjálfara meistaraflokks karla. Aron hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið og tekur þegar við starfinu.
Aron er uppalinn Fylkismaður og þekkir því félagið vel. Hann er 31 árs gamall og lék upp alla yngri flokka félagsins áður en hann lék með meistaraflokki árið 2014. Síðasta tímabil sitt sem leikmaður lék hann með Elliða, venslaliði Fylkis, árið 2017.
🗣️ Aron Baldvin, við undirskrift:
Þetta er bara draumur að rætast fyrir mig. Ég er náttúrlega mikill Fylkismaður og hef verið það alla tíð. Ég var ungur strákur á Fylkispöllunum í stuðningsmannasveit Kidda Tomm og það hefur alltaf verið sérstök tenging hjá mér við félagið. Að fá núna tækifæri til að þjálfa uppeldisfélagið sitt er bara mikil forréttindi og mikið stolt. Ég veit hvað Fylkir skiptir mig miklu máli og það verður lagt allt í sölurnar fyrir félagið. Ég hlakka ótrúlega mikið til þess að byrja,
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Aron byggt upp öflugan þjálfaraferil og skipað sér sess sem einn af efnilegri þjálfurum landsins. Hann hefur starfað hjá Víkingi frá árinu 2019 og verið hluti af þjálfarateymi meistaraflokks frá árinu 2022 undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar. Árið 2024 tók hann við starfi aðstoðarþjálfara liðsins þegar Sölvi Geir Ottesen tók við sem aðalþjálfari.
Ráðningin markar nýjan kafla í þjálfaraferli Arons en þetta er hans fyrsta starf sem aðalþjálfari meistaraflokks.
Knattspyrnudeild Fylkis bindur miklar vonir við ráðningu Arons og hlakkar til samstarfsins. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá uppalinn Fylkismann aftur heim í Árbæinn og taka saman næstu skref í uppbyggingu meistaraflokks karla.
Velkominn heim, Aron! 🧡🖤
Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir















