
Máni Austmann leggur skóna á hilluna
By Jakob Örn Heiðarsson • 4. nóvember 2026
Máni Austmann Hilmarsson, 28 ára sóknarmaður, hefur ákveðið að leggja skóna frægu á hilluna eftir farsælan feril í íslenskri knattspyrnu.
Máni lék með yngri landsliðum Íslands á sínum ferli og hefur meðal annars klæðst treyjum Stjörnunnar, ÍR, HK, Leiknis R., FH og Fjölnis áður en hann gekk til liðs við Fylki í júlí 2025.
Á þeim tíma sem Máni lék með Fylki kom hann alls við sögu í 43 leikjum og skoraði 10 mörk. Þar af lék hann 35 leiki á nýliðnu tímabili og gegndi mikilvægu hlutverki í liðinu.
🗣️ Máni með kveðju:
Takk fyrir mig, Fylkir! Ég hef átt margar góðar stundir hér og kynnst fullt af góðu fólki. Takk til liðsfélaga, þjálfara, starfsfólks og stuðningsmanna fyrir tímann saman. Ég óska ykkur alls hins besta og mun fylgjast vel með áfram!“ 🧡
Knattspyrnudeild Fylkis þakkar Mána kærlega fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum alls hins besta í þeim verkefnum sem fram undan eru.
Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir













