Kristófer Sigurgeirsson kveður


By Jakob Örn Heiðarsson • 30. október 2026

Kristófer Sigurgeirsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla síðastliðin tvö tímabil hefur nú kvatt félagið.


Kristófer var ráðinn til Fylkis í nóvember 2024 samhliða ráðningu Árna Freys, sem tók þá við sem aðalþjálfari liðsins. Kristófer kom inn sem aðstoðarþjálfari en tók jafnframt að sér mikilvæg verkefni á sviði afreksþjálfunar og þjálfunar 2. flokks karla. Þá lék hann lykilhlutverk í aðlögun ungra leikmanna sem voru að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki karla.

🗣️ Skilaboð frá Kristófer

Ég vil nýta tækifærið og þakka leikmönnum, stjórn, ráðum, starfsfólki og stuðningsfólki Fylkis kærlega fyrir þann tíma sem ég hef átt hjá félaginu. Tíminn hjá Fylki hefur verið einstaklega ánægjulegur og lærdómsríkur og ég er afar þakklátur fyrir allar þær góðu stundir sem ég hef upplifað á þessum tíma.


Ég óska félaginu, leikmönnum og öllum þeim sem starfa innan þess alls hins besta í framtíðinni.

Á þeim tveimur árum sem Kristófer starfaði hjá Fylki vann hann með þremur aðalþjálfurum, fyrst Árna Frey, síðar Arnari Grétarssyni og síðast Heimi Guðjónssyni. Undir stjórn Heimis og Kristófers varð karlalið Fylkis Lengjubikarmeistari á nýliðnu tímabili og náði jafnframt eftirtektum árangri í sumar með liðið, þar sem liðið var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í Bestu deildinni og komst í úrslitaleik Mjólkurbikars karla.


Við þökkum Kristófer innilega fyrir störf hans og framlag til félagsins undanfarin tvö ár og óskum honum alls hins besta í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.


Skráðu þig á póstlista Fylkis

Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð

Contact Us

Deildu þessari frétt

Allar fréttir

Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 30. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar fór fram 29.október síðastliðinn. Á fundinum var kosin ný stjórn deildarinnar sem er óbreytt frá fyrra ári og Ragnar Páll Bjarnason áfram formaður knattspyrnudeildar. Skipað var í þrjú ráð deildarinnar ásamt því að staðfesta stjórn Indriðasjóðsins og skipun uppstillingarnefndar. Stjórn knattspyrnudeildar Ragnar Páll Bjarnason, Formaður Edda Sif Sigurðardóttir Davíð Gunnarsson Haraldur Úlfarsson Hjördís Jóhannesdóttir Barna- og unglingaráð Ólafur Thorarensen, Formaður Ágústa Ósk Einarsdóttir Eiður Kristjánsson Meistaraflokksráð kvenna Kristófer Númi Hlynsson, Formaður Atli Már Agnarsson Ámundi Halldórsson Jónína Guðrún Reynisdóttir Júlíus Örn Ásbjörnsson Kamilla Rún Ólafsdóttir Sigurður Magnússon Steinunn Jónsdóttir Meistaraflokksráð karla Jón Þór Júlíusson, Formaður Árni Leó Þórðarson Sigfús Örn Guðmundsson Valur Ragnarsson Þorsteinn Lár Ragnarsson Stjórn Minningarsjóðs Indriða Einarssonar Loftur Ólafsson, Formaður Finnur Kolbeinsson Kristinn Tómasson Steinunn Jónsdóttir Þór Hauksson Uppstillingarnefnd Guðrún Ósk Jakobsdóttir Halldór Frímannsson Rúnar Geirmundsson
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 28. október 2026
Knattspyrnudeild Fylkis og Heimir Guðjónsson hafa komist af samkomulagi um að Heimir láti af störfum sem aðalþjálfari meistaraflokks karla frá og með deginum í dag. Í lok október 2025 tilkynntum við um ráðningu Heimis sem þjálfara Fylkis til næstu tveggja ára. Samningurinn milli aðila gerði ekki ráð fyrir heimild til uppsagnar. Við lítum stolt um öxl þegar við horfum til tímabilsins 2026 þó svo að megin markmiðið að tryggja okkur réttinn til að spila í Bestu deild 2027 hafi ekki náðst. Fylkir vann Lengjubikarinn sl. vor, við lékum til undanúrslita í Mjólkurbikarkeppni KSÍ og heilt yfir voru miklar framfarir á liðinu frá fyrra ári. Stuðningurinn við Fylki í úrslitakeppninni í september var framúrskarandi og þar eiga stuðningsmenn Fylkis mikið hrós skilið. Í fjölmiðlum og hlaðvörpum hefur nafn Heimis ítrekað verið tengt við önnur félög á undanförnum mánuðum. Eftir rót síðustu vikna er það mat stjórnar Knattspyrnudeildar Fylkis að hagsmunum Fylkis sé best þjónað með slitum á samstarfinu við Heimi Guðjónsson. Við þökkum Heimi fyrir hans framlag til Fylkis og óskum honum velfarnaðar. Stjórn deildarinnar og meistaraflokksráð er staðráðið að byggja á þeim góða grunni sem er til staðar hjá Fylki. Leit að nýjum aðalþjálfara karlaliðs Fylkis er hafin. GLEÐI VIRÐING METNAÐUR - Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 22. október 2026
Tillögur að breytingum á reglugerð knattspyrnudeildar Fylkis
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar. Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Breyting á reglugerð knattspyrnudeildar, sjá nánar hér - Önnur mál
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 14. september 2026
Úrslitastund á Laugardalsvelli gegn Þrótturum 🧡
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 24. ágúst 2026
Síldarveisla Fylkis fyrir síðasta heimaleikinn!
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 20. ágúst 2026
Skráning er hafin fyrir nýtt tímabil hjá Betri borgurum
Eftir Jakob Fylkir • 26. júlí 2026
Skrifar undir samning út tímabilið 2026
Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.