Góð kvöldstund með iðkendum sem kveðja 2. flokk!
Hafsteinn • 1. október 2019

Góð kvöldstund með iðkendum sem kveðja 2. flokk!

Ungmenni sem fædd eru árið 2000 og voru að ljúka sínu síðasta ári í yngri flokka starfi Fylkis var boðið í létt spjall og veitingar þann 26. september síðastliðinn.

Boðið var upp á léttar veitingar ásamt því að Jón Steindór Þorsteinsson sem hefur þjálfað unga iðkendur félagsins til margra ára og Ólafur Ingi Skúlason fyrirliði meistaraflokks mættu og ræddu við hópinn. Rætt var um mikilvægi þess að halda í vinskapinn og að muna  allar góðu stundirnar auk þess sem ungmennunum voru kynntar ýmsar leiðir til að halda áfram að spila knattspyrnu ef þau óska þess. Þau voru hvött eindregið til að halda áfram að vera virk innan félagsins hvort sem það verður sem leikmenn, dómarar, stjórnarfólk, sjálfboðaliðar eða öflugt stuðningsfólk.
Formaður knattspyrnudeildar þakkaði þeim kærlega fyrir samveruna og allt þeirra framlag hingað til og færði þeim árskort á heimaleiki félagsins næsta sumar.

Margt af þessu unga og efnilega fólki hefur æft og spilað með félaginu í fjölda ára og vonandi hafa þau haft eins mikið gagn og gaman af verkefnunum eins og félagið hefur haft af því að fylgjast með þeim vaxa og dafna. Knattspyrnudeild Fylkis er stolt af þessu unga fólki og vonar að þessi öflugi hópur haldi ávallt merki félagsins hátt á lofti, innan vallar sem utan og að þau horfi til baka á tíma sinn í yngri flokkum félagsins með hlýju í hjarta.

Á myndinni má sjá þá iðkendur sem höfðu tök á því að sitja kvöldstundina ásamt Jóni Steindór Þorsteinssyni og Ólafi Inga Skúlasyni.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar.  Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Önnur mál
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 14. september 2026
Úrslitastund á Laugardalsvelli gegn Þrótturum 🧡
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 24. ágúst 2026
Síldarveisla Fylkis fyrir síðasta heimaleikinn!
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 20. ágúst 2026
Skráning er hafin fyrir nýtt tímabil hjá Betri borgurum
Eftir Jakob Fylkir • 26. júlí 2026
Skrifar undir samning út tímabilið 2026
Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður • 15. júní 2026
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar […] The post Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis FC á appelsínugulum lituðum bakgrunni með svörtum og hvítum hringlaga merki.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […] The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.
Fimm manns sitja fyrir innandyra við appelsínugulan borða í björtu herbergi
Eftir Hörður • 4. júní 2026
Aðalfundurinn fór fram á afmælisdegi félagsins 28.maí síðastliðinn en það eru 59 ár liðin frá því félagið var stofnað.  Dagskráin var hefðbundin nema það var boðið upp á veitingar í […] The post Björn Gíslason endurkjörinn formaður félagsins appeared first on Fylkir.
Show More