
Júlía Huld framlengir um tvö ár
By Jakob Örn Heiðarsson • 24. nóvember 2026
Júlía Huld Birkisdóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fylkis og verður áfram í herbúðum félagsins út keppnistímabilið 2028.
Júlía er uppalin hjá Fylki og var hún á dögunum verðlaunuð á lokahófi meistaraflokka karla og kvenna fyrir þann áfanga að hafa leikið upp alla flokka félagsins. Júlía, sem er fædd árið 2009, steig sín fyrstu skref með meistaraflokki á síðasta tímabili og stóð sig afar vel í markinu. Hún hélt hreinu í átta af þeim 16 leikjum sem hún lék á tímabilinu.
Það er mikið ánægjuefni að sjá uppalda leikmenn taka skrefin upp í meistaraflokk og Júlía er sannarlega spennandi leikmaður til framtíðar. Við óskum Júlíu til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til að sjá hana halda áfram að standa sig vel milli stanganna! 🧡








Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir










