
Jóel Baldursson skrifar undir nýjan samning
By Jakob Örn Heiðarsson • 27. nóvember 2026
Jóel Baldursson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Fylkis.
Jóel er 19 ára gamall og uppalinn Fylkismaður sem hefur verið að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Hann lék alls 11 leiki í deildar- og bikarkeppnum með liðinu á síðasta tímabili og á nú þegar að baki 22 leiki fyrir meistaraflokk félagsins.
Jóel er öflugur og útsjónarsamur leikmaður sem við hjá Fylki höfum miklar væntingar til. Við vonumst til að sjá hann vaxa áfram og taka enn stærra hlutverk í liðinu á næstu árum. Það er virkilega ánægjulegt að hann hafi ákveðið að halda tryggð við uppeldisfélagið sitt og taka þátt í þeirri vegferð sem fram undan er, þar sem markmiðið er að koma Fylki aftur í deild þeirra bestu
segir Jón Þór Júlíusson, formaður meistaraflokksráðs karla.
Það er mikið ánægjuefni að sjá uppalda leikmenn halda áfram að taka framförum í appelsínugulu treyjunni og við hlökkum til að fylgjast með Jóel á næstu árum! 🧡






Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir










