Aníta Björg gengur til liðs við Fylki
By Jakob Örn Heiðarsson • 28. nóvember 2026
Aníta Björg Sölvadóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Fylkis og kemur til félagsins frá Fjölni.
Aníta er 24 ára og hefur öðlast góða reynslu í meistaraflokki þrátt fyrir ungan aldur. Hún hefur leikið alls 156 meistaraflokksleiki á ferlinum og skorað 23 mörk. Aníta er örvfætt og fjölhæfur leikmaður sem getur leyst nokkrar stöður á vellinum.
Aníta er fjölhæfur leikmaður með góða sóknarhæfileika og frábæran vinstri fót. Hún býr yfir miklum styrkleikum og við bindum miklar vonir við hana á komandi tímabili.
– Sigurður Þór Reynisson, þjálfari meistaraflokks kvenna.
Við bjóðum Anítu Björgu hjartanlega velkomna í Árbæinn og hlökkum til að sjá hana skína í appelsínugulu treyjunni! 🧡



Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir











