
Arnór Breki framlengir
By Jakob Örn Heiðarsson • 27. nóvember 2026
Arnór Breki Ásþórsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fylkis og verður áfram í herbúðum félagsins út keppnistímabilið 2028.
Arnór Breki var varafyrirliði Fylkis á síðasta tímabili og lék alls 39 leiki með liðinu í öllum keppnum. Hann hefur á ferli sínum leikið 349 leiki í meistaraflokki, þar af 150 fyrir Fylki. Fyrir þann áfanga var hann sérstaklega heiðraður á lokahófi deildarinnar á dögunum.
Arnór Breki er 28 ára bakvörður sem gekk til liðs við Fylki árið 2022 eftir góðan feril með Fjölni og Aftureldingu, þá á hann einnig að baki leiki með yngri landsliðum Íslands. Hann hefur með reynslu sinni og framlagi verið mjög mikilvægur leikmaður í liði Fylkis síðustu ár.
Það eru virkilega ánægjuleg tíðindi að tryggja áframhaldandi krafta Arnórs Breka og hlökkum við til að sjá hann leiða liðið áfram í appelsínugulu treyjunni! 🧡




Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir










