
Magnús Daði á æfingum hjá Bayern München í annað sinn
By Jakob Örn Heiðarsson • 23. nóvember 2026
Magnús Daði Ottesen, framherji Fylkis, heldur í dag í annað sinn til æfinga hjá þýska stórliðinu Bayern München. Þessi 15 ára gamli leikmaður var á dögunum valinn efnilegasti leikmaður Fylkis af liðsfélögum sínum í meistaraflokki í lokahófi deildarinnar, en hann verður 16 ára þann 30. nóvember næstkomandi.
Á nýliðnu tímabili lék Magnús Daði alls 9 leiki með 3. og 2. flokki Fylkis þar sem hann skoraði alls 10 mörk. Þá lék hann 6 landsleiki með U16 og U17 landsliðunum og skoraði 6 mörk. Magnús lék svo alls 21 leik í öllum keppnum með meistaraflokki Fylkis í sumar og skoraði í þeim fimm mörk, þar sem liðið endaði í þriðja sæti í Lengjudeildinni, spilaði til úrslita á Laugardalsvelli um laust sæti í efstu deild, komst í undanúrslitaleik Mjólkurbikarsins og vann A-deild Lengjubikarsins í vor. Alls eru þetta 36 leikir og 21 mark í sumar hjá framherjanum efnilega.
Magnús Daði verður í viku við æfingar hjá þýsku meisturunum sem hafa haldið áfram að fylgast vel með þróun hans og þroska sem leikmanns eftir að hann fór þangað á reynslu í fyrra. Það þarf varla að taka það fram að þetta er ótrúlegt tækifæri fyrir Magnús Daða og við í Fylki erum verulega stolt af okkar manni og óskum honum góðs gengis á æfingunum sem fram undan eru í Þýskalandi.
Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir










