
Takk fyrir að segja okkur hvað ykkur finnst
By Jakob Örn Heiðarsson • 28. nóvember 2026
Í nóvember lagði Fylkir þjónustukönnun fyrir iðkendur og foreldra í öllum deildum félagsins og bárust um 260 svör. Við þökkum öllum sem gáfu sér tíma til að svara.
Niðurstöðurnar eru ánægjulegar að mörgu leyti. Gleði og virðing á æfingum fá hæstu einkunnirnar og mikið hrós barst til þjálfara félagsins. Það sýnir að gildin okkar, gleði, virðing og metnaður, eru hluti af starfinu.
Þið bentuð okkur líka skýrt á hvað má betur fara. Þar ber hæst aðstaða, bæði inniaðstöðu að vetri og klefa- og geymsluaðstöðu fyrir iðkendur, en einnig upplýsingagjöf.
Könnunin er hluti af stefnu Fylkis um markvisst umbótastarf. Í janúar fer hver deild yfir sínar niðurstöður og velur aðgerðir til úrbóta, og við munum segja frá þeim hér. Könnunin verður svo endurtekin svo við sjáum hvort okkur miðar áfram.
Áfram Fylkir! 🧡
Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir










