Námskeiðin hjá rafíþróttadeildinni byrja 13.janúar

Hörður • 6. janúar 2020
Skráning á námskeið rafíþróttadeildar Fylkis er í fullum gangi. Námskeiðin hefjast 13. janúar og er hægt að skrá inn á skráningarsíðu Fylkis https://fylkir.felog.is
Uppselt er nú þegar á nokkur námskeið en um að gera að skrá sig á biðlista og ef nægur fjöldi fæst þá verður bætt við námskeiði.
Hægt er að nota frístundastyrk vegna ársins 2019 á námskeiðin.
Við hvetjum forráðamenn til að skrá börnin á biðlista ef námskeiðið er fullt því við munum eftir fremsta megni bæta við hópum ef biðlistar eru nógu langir til að manna nýjan hóp.
Iðkendur þurfa að eiga aðgang að þeim leik sem á að iðka, deildin sér annars fyrir öllum öðrum æfingatækjum. Við hvetjum forráðamenn til þess að vera meðvitaðir um aldursviðmið PEGI. Skráning á æfingar er á ábyrgð forráðamanna og við skráningu er forráðamaður að senda samþykki sitt við því að iðkandinn spili þann leik sem það hefur verið skráð á æfingar fyrir.
Hámark eru 10 á hvert námskeið.
Námskeiðin eru:
Finndu þína rafíþrótt – bæði kyn saman, skipt upp í 10-12 ára 15:00-16:30 og 13-16 ára 16:30-18:00 (mán og mið)
CS:GO – kynjaskipt, kvk 18:00-19:30 og kk 19:30-21:00, fyrir 13-16 ára (mán og mið)
FIFA Playstation 4 – bæði kyn saman, skipt upp í 10-12 ára 15:00-16:30 og 13- 16 ára 16:30-18:00 (þri og fim)
Overwatch – kynjaskipt, kvk 18.00-21:00 og kk 15:00-18:00, fyrir 10-16 ára (fös)
Apex/PubG – bæði kyn saman fyrir 13-16 ára, 10:00-13:00 (lau)
League of Legends – bæði kyn saman fyrir 13-16 ára, 13:00-16:00 (lau)
Fortnite – bæði kyn saman, skipt í 10-12 ára, 18:00-19:30 og 13-16 ára, 19:30-21:00
(þri og fim)
The post Námskeiðin hjá rafíþróttadeildinni byrja 13.janúar appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […]
The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […]
The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.

Eftir Hörður
•
5. maí 2026
Nýverið sendi knattspyrnudeild Fylkis valkröfu í heimabanka flestra íbúa í 110 þar sem við óskum eftir styrkjum til að lyfta öllu starfi félagsins áfram á hærra stig og skiptir þar engu […]
The post Ákall til 110 – Enginn getur allt en allir geta eitthvað. appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
30. apríl 2026
Reykjavíkurborg og Íþaka fasteignafélag skrifuðu í dag undir nýjan samning um Fylkisselið í Norðlingaholti. Fylkisselið hýsir í dag aðstöðu fimleikadeildar, karatedeildar og rafíþróttadeildar Fylkis. Samningurinn kveður meðal annars á um […]
The post Fylkisselið stækkar: Nýr samningur undirritaður appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
22. apríl 2026
Nú í hádeginu fór fram opinber fundur Lengjudeildarinnar þar sem farið var yfir komandi tímabil og m.a. spá formanna, þjálfara og fyrirliða liða í Lengjudeild karla var kynnt. Þar var […]
The post Fylki spáð efsta sæti í Lengjudeildinni appeared first on Fylkir.

Eftir Hörður
•
16. apríl 2026
Boðað er til aðalfundar Fylkis körfuboltadeildar. 📅 Dagsetning: Fimmtudagur 30. apríl 🕒 Tími: Kl. 20:00 📍 Staður: Fylkishöll Dagskrá fundar: Skýrsla stjórnar Kosning stjórnar Ákvörðun um æfingagjöld Önnur mál Öllum félagsmönnum, iðkendum og áhugafólki um starf […]
The post Aðalfundur körfuknattleiksdeildar appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
12. febrúar 2026
Máni Austmann Hilmarsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fylkis og mun leika áfram með okkur út keppnistímabilið 2026 hið minnsta. Máni kom til Fylkis frá Fjölni á miðju tímabili […]
The post Máni Austmann áfram í appelsínugulu! appeared first on Fylkir.



