Ég elska tvennt við KR
Hafsteinn • 14. júlí 2020

Ég elska tvennt við KR

N.k. sunnudag fáum við Íslandsmeistara KR í heimsókn. Heimaleikur við KR hefur alltaf skipað stóran sess í mínum huga. Ekki skemmir það að þeir eru ríkjandi meistarar í Pepsi Max deildinni og hefur vegnað vel fram að þessu og einnig höfum við byrjað mótið ágætlega.

Þegar góða gesti ber að garði þá er oft tínt til það besta úr búrinu og veglega veitt. Þannig verður það á sunnudag. Við munum blása til hátíðar og opna FANZONE við austurenda Fylkishallar þar sem upphitun og andlitmálun fer fram. Skátarnir verða tilbúnir með hoppukastala og candyflos og félagið mun selja ýmsan varning. Grillin verða á sínum stað og Tailenski staðurinn Rakang verður með bás. Tjörnes ætla að taka nokkur hressandi upphitunarlög og knattþrautir verða í umsjá yngri flokka þjálfara.

Margar skemmtilegar minningar má tengja þessum leikjum. Í upphafi aldarinnar gekk okkur vel með KR á heimavelli. Árið 2000 lékum við einum færri frá 28 mínútu en náðum jafntefli 1-1 en mark Fylkis skoraði Gylfi Einars. Árið 2001 unnum við KR í opnunarleik Landsbankadeildarinnar 1-0 með marki frá Steingrími heitnum Jóhannessyni. Svo var komið að leiknum örlagaríka árið 2002. 1-1 endaði sá leikur með mörkum frá Ómari Valdimarssyni og manninum sem ekki má nefna í Árbæ og KR hélt í titilvonina. Árið eftir unnum við þá 2-1 eftir að Siggi Raggi hafði komið þeim yfir snemma leiks. Mörk frá Hauki Inga og Birni Viðari tryggði okkur sigurinn. Þjálfari KR, Willum Þór Willumson ætlaði að reyna sama trikk og árinu áður að setja manninn sem ekki má nefna í Árbæ inná á lokamínútum leiksins en það tókst ekki. Árið 2004 kom yndislegur 3-1 sigur með tveimur mörkum Gústa Breiðdal og einu frá Val Fannari en Arnar Gunnlaugs kom vesturbæingum á blað. Síðan tóku við nokkur mögur ár gegn móður allra klúbba Íslandi. Síðast unnum við KR á heimavelli 2012 með mörkum frá Emil Ásmundssyni, sem nú er genginn til liðs við KR, Ingimundi Níels og Björgólfi Takefusa sem báðir hafa leikið með KR. Einu leikmennirnir sem léku þennan leik og eru enn að spila með sínum liðum eru fyrir utan Emil sem hefur haft vistaskipti og er meiddur, Ásgeir Eyþórsson sem kom inná sem varamaður og fyrir KR, Aron Bjarki Jósepsson og Atli Sigurjónsson.

En eins og segir í fyrirsögninni þá er það tvennt sem ég elska við KR. Það fyrsta er að vinna þá og annað, hversu duglegir KR ingar eru að mæta á útileiki og styðja sitt lið. Þeir eru til fyrirmyndar á þessu sviði. Þess vegna verða allir leikir við KR stórleikir í mínum huga og þannig verður það n.k. sunnudag einnig.

Um leið og við bjóðum alla KR inga velkomna í Lautarferð á Wurth völlinn viljum við minna á bílastæði við kirkjuna en aðeins 5 mínútna gangur er þaðan á völlinn. Við hvetjum líka alla áhorfendur að nýta sér STUBB appið til að kaupa miða.

Mætum tímanlega og njótum stemmingarinnar á þessum stórleik í íslenskum fótbolta.

ÁFRAM FYLKIR

Kjartan Danielsson

Formaður Knattspyrnudeildar

WÜRTH VÖLLURINN
FYLKIR – KR
OLÍS LEIKURINN
SUNNUDAG KL 17:30

The post Ég elska tvennt við KR appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar.  Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Önnur mál
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 14. september 2026
Úrslitastund á Laugardalsvelli gegn Þrótturum 🧡
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 24. ágúst 2026
Síldarveisla Fylkis fyrir síðasta heimaleikinn!
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 20. ágúst 2026
Skráning er hafin fyrir nýtt tímabil hjá Betri borgurum
Eftir Jakob Fylkir • 26. júlí 2026
Skrifar undir samning út tímabilið 2026
Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður • 15. júní 2026
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar […] The post Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis FC á appelsínugulum lituðum bakgrunni með svörtum og hvítum hringlaga merki.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […] The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.
Fimm manns sitja fyrir innandyra við appelsínugulan borða í björtu herbergi
Eftir Hörður • 4. júní 2026
Aðalfundurinn fór fram á afmælisdegi félagsins 28.maí síðastliðinn en það eru 59 ár liðin frá því félagið var stofnað.  Dagskráin var hefðbundin nema það var boðið upp á veitingar í […] The post Björn Gíslason endurkjörinn formaður félagsins appeared first on Fylkir.
Show More