Yfirlýsing frá Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis
Hafsteinn • 1. október 2020

Yfirlýsing frá Stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis

Vegna grófra ummæla Rúnars Kristinssonar þjálfara KR í viðtölum á Stöð 2 og fótbolta.net eftir leik KR og Fylkis s.l. sunnudag langar okkur að koma eftirfarandi á framfæri

Okkur var verulega brugðið þegar þjálfari KR viðhafði fordæmalausan óhróður um leikmann Fylkis, Ólaf Inga Skúlason og vændi leikmanninn og liðið allt um að stunda ítrekað svindl og svínarí í gegnum tíðina í viðtölum eftir leik liðanna. Fleiri miður falleg og einstaklega ósvífin orð voru látin falla sem verða ekki tíunduð hér en eru þjóðinni kunn og eru honum og félaginu KR til háborinnar skammar.

Rétt er að taka fram að það er partur af leiknum að vera ósammála um atvik í leikjum eða frammistöðu leikmanna og dómara og hafa á þeim sterkar skoðanir.   Þau ummæli sem hér um ræðir voru hins vegar einstaklega persónulegar ærumeiðingar sem að mati okkar Fylkismanna fóru langt út fyrir þau velsæmismörk sem eðlilegt er að setja bæði til að vernda leikmenn og starfsmenn leikja.    Slík mörk eru ekki síður mikilvæg til að viðhalda virðingu leiksins og sýna ábyrgð út á við af þeim sem eru sterkar fyrirmyndir margra og ekki síst barna og ungmenna.

Við hjá knattspyrnudeild Fylkis höfum haft miklar mætur á Rúnari Kristinssyni sem á einstaklega glæsilegan knattspyrnuferil að baki jafnt með félagsliðum og landsliðum þar sem hann hefur iðulega komið fram af prúðmennsku.    Hefur hann sem þjálfari jafnframt iðulega komið vel fram í fjölmiðlum og verið málefnalegur, agaður og hófstilltur.   Af þessum ástæðum svíður það enn meir að hann skuli viðhafa þessi bersýnilegu röngu og meiðandi ummæli um leikmann okkar og lið enda er hlustað á hann og tekið mark á honum.

Eftir stendur hins vegar að flestir þeir hlutlausu sérfræðingar sem hafa tjáð sig um umrætt atvik eru sammála um að ákvörðun dómara hafi verið rétt.  Jafnframt hefur enginn tekið undir ummæli þjálfarans um óheiðarleika og svindl af hálfu umrædds leikmanns né hafa verið sett fram dæmi sem styðja þessi ummæli.   Það eru hins vegar til nýleg dæmi þar sem að Rúnar hrósaði leikmanni sínum eftir að leikmaðurinn viðurkenndi að hafa „fiskað“ annan leikmann af velli með leikaraskap.   Framangreind ummæli Rúnars dæma sig því sjálf.   Hið rétta er eins og allir vita sem til þekkja að Ólafur Ingi Skúlason er frábær leikmaður og persónuleiki bæði innan og utan vallar sem á glæsilegan feril að baki bæði með félagsliðum og íslenskum landsliðum.  Hann getur verið fastur fyrir á vellinum en hann er langt frá því að vera óheiðarlegur leikmaður eða svindlari.

Forráðamenn Fylkis hafa ávallt lagt sig fram við að eiga gott samstarf við KR og hefur það oftast gengið eftir.  Stuðningsmenn þeirra eru einstakir og okkur hlakkar alltaf til komu þeirra í Árbæinn.   Það er hins vegar miður að KR hefur ekki séð ástæðu til að biðjast afsökunar eða með öðrum hætti að bera klæði á vopnin.   Með þessu er þetta stórveldi í íslenskri knattspyrnu að setja ný háttsemis- og samskiptaviðmið.

Við Fylkismenn höfum hins vegar ákveðið að setja þetta mál aftur fyrir okkur með þessari yfirlýsingu og munum þess í stað einbeita okkur að leiknum sjálfum og þeim fjölmörgu verkefnum sem þessir fordæmalausu tímar hafa lagt á íþróttahreyfinguna.  Þannig stuðlum við best að öflugu starfi knattspyrnudeildar Fylkis bæði í meistaraflokkum karla og kvenna og í yngri flokkum þar sem við munum áfram leggja áherslu á háttvísi innan og utan vallar.

Í framangreindu ljósi hefur stjórn Knattspyrnudeildar Fylkis ákveðið að senda ekki inn kæru til Aga- og úrskurðarnefdar KSÍ vegna þessara ummæla þjálfarans en láta þess í stað KSÍ það eftir að taka þetta mál til skoðunar með það fyrir augum að standa vörð um háttvísi íslenskrar knattspyrnu og setja umræðunni takmörk.

 

Máli þessu er hér með lokið af okkar hálfu.

 

Fyrir hönd Knattspyrnudeildar Fylkis

Kjartan Daníelsson

Eftir Jakob Örn Heiðarsson 24. ágúst 2026
Síldarveisla Fylkis fyrir síðasta heimaleikinn!
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 20. ágúst 2026
Skráning er hafin fyrir nýtt tímabil hjá Betri borgurum
Eftir Jakob Fylkir 26. júlí 2026
Skrifar undir samning út tímabilið 2026
Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður 15. júní 2026
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar […] The post Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis FC á appelsínugulum lituðum bakgrunni með svörtum og hvítum hringlaga merki.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […] The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.
Fimm manns sitja fyrir innandyra við appelsínugulan borða í björtu herbergi
Eftir Hörður 4. júní 2026
Aðalfundurinn fór fram á afmælisdegi félagsins 28.maí síðastliðinn en það eru 59 ár liðin frá því félagið var stofnað.  Dagskráin var hefðbundin nema það var boðið upp á veitingar í […] The post Björn Gíslason endurkjörinn formaður félagsins appeared first on Fylkir.
FyLkir merkið á appelsínugulum til svörtum litbrigðum bakgrunni
Eftir Hörður 5. maí 2026
Nýverið sendi knattspyrnudeild Fylkis valkröfu í heimabanka flestra íbúa í 110 þar sem við óskum eftir styrkjum til að lyfta öllu starfi félagsins áfram á hærra stig og skiptir þar engu […] The post Ákall til 110 – Enginn getur allt en allir geta eitthvað. appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður 4. maí 2026
Aðalfundur íþróttafélagsins Fylkis verður haldinn fimmtudaginn 28.maí 2026 kl. 19:30 í samkomusal Fylkishallar Dagskrá: -Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins -Önnur mál Aðalstjórn Fylkis The post Aðalfundur Fylkis appeared first on Fylkir.
Fjórir einstaklingar sitja fyrir aftan appelsínugult FYLKIR borð á blaðamannafundi eða fundi
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 30. apríl 2026
Reykjavíkurborg og Íþaka fasteignafélag skrifuðu í dag undir nýjan samning um Fylkisselið í Norðlingaholti. Fylkisselið hýsir í dag aðstöðu fimleikadeildar, karatedeildar og rafíþróttadeildar Fylkis. Samningurinn kveður meðal annars á um […] The post Fylkisselið stækkar: Nýr samningur undirritaður appeared first on Fylkir.
Show More