Tilkynning frá Fylki vegna Covid smits

Hörður • 22. mars 2021
Leikmaður meistaraflokks karla í knattspyrnu greindist með Covid 19 um helgina og eru allir sem hann var í samskiptum við síðustu daga komnir í sóttkví. Þar á meðal þeir sem tóku þátt í leik Stjörnunnar og Fylkis í Garðabænum á laugardaginn. Búið er að sótthreinsa þá aðstöðu sem meistaflokkurinn er með og verður sú aðstaða lokuð í dag mánudaginn 22.mars. Umrætt smit hefur ekki áhrif á aðra starfsemi innan félagsins. Félagið mun nú sem áður fylgja öllum þeim reglum og tilmælum sem sóttvarnaryfirvöld hafa gefið út og hvetjum við alla til að huga áfram vel að persónubundnum sóttvörnum.
The post Tilkynning frá Fylki vegna Covid smits appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar. Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Önnur mál

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […]
The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […]
The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.






