Fylkir og Gleðistjarnan undirrita samstarfssamning.

Viktor Lekve • 14. júlí 2023
Knattspyrnudeild Fylkis og góðgerðafélagið Gleðistjarnan skrifuðu í gær undir samstarfssamning um Fylkismótin sem haldin eru árlega og eru fyrir iðkendur í 8. – 5 flokki, og munu mótin heita Gleðistjörnumótin.
Gleðistjarnan er góðgerðarfélag sem stofnað hefur verið til minningar um Þuríði Örnu Óskarsdóttur sem lést þann 20. mars 2023 eftir rúmlega 18 ára baráttu við heilaæxli sem hún greindist með aðeins tveggja ára gömul.
Tilgangur félagsins er að halda uppi minningu Þuríðar með því að gleðja systkini langveikra barna með gleðigjöfum og viðburðum en fjölskylda Þuríðar þekkir það vel hversu mikilvægt það er að finna góðan stuðning samfélagsins á erfiðum tímum.
Það voru þau Elvar Örn Þórisson, formaður barna og unglingaráðs Fylkis og Áslaug Ósk Hinriksdóttir formaður Gleðistjörnunnar sem skrifuðu undir samningin í hálfleik á leik Fylkis og KR í meistaraflokki kvenna. Með þeim á myndinni eru þau Theodór Ingi Óskarsson, Hinrik Örn Óskarsson og Jóhanna Ósk Óskarsdóttir systkini Þuríðar, sem öll spila fótbolta með yngri flokkum Fylkis, ásamt stelpum úr yngri flokkum félagsins sem eru á leið á Símamótið um komandi helgi !
Við hjá Fylki erum stolt af þessu samstarfi og hlökkum til að sjá spræka krakka taka þátt í Gleðistjörnumótinu 2023!
The post Fylkir og Gleðistjarnan undirrita samstarfssamning. appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar. Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Önnur mál

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […]
The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson
•
9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […]
The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.






