Íslensk knattspyrna 2024
Kristján Gylfi • 17. desember 2024

Bókin Íslensk knattspyrna 2024 er komin út. Þetta er 44. árið sem bókin er gefin út en hún hefur komið út samfleytt frá árinu 1981. Sögur Útgáfa gefa út bókina sem er stærri en nokkru sinni fyrr, 304 blaðsíður í stóru broti og skreytt með um 450 myndum af leikmönnum og liðum.

Í bókinni er sagt ítarlega frá Íslandsmótunum 2024 í öllum deildum karla og kvenna, sem og yngri flokkunum, bikarkeppninni, Evrópuleikjunum og vetrarmótunum. Þá er landsleikjum ársins í öllum aldursflokkum gerð góð skil og fjallað sérstaklega um íslenska knattspyrnufólkið sem leikur erlendis.

Í bókinni er ítarleg tölfræði um leikmenn og lið, sjá má liðsskipan allra liða í öllum deildum í meistaraflokkum karla og kvenna, leikjafjölda leikmanna í efri deildum, leikjahæstu karla og konur, marka- og leikjahæstu karla og konur í deildakeppni hér og erlendis ásamt mörgu fleiru.

Viðtöl í bókinni eru við Ástu Eir Árnadóttur og Andra Rafn Yeoman, Íslandsmeistara kvenna og karla með Breiðabliki, en einnig við Hallgrím Mar Steingrímsson, leikmann bikarmeistara KA og Sævar Pétursson framkvæmdastjóra KA.

Í ár er bókin gefin út með tveimur kápum. Á kápu hefðbundnu útgáfunnar eru myndir af Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks í karla- og kvennaflokki og sú útgáfa er í almennri sölu og dreifingu og fæst í bókaverslunum Eymundsson um allt land. Einnig er hægt að panta hana, ásamt eldri bókum, á heimasíðu Sögur Útgáfa,  sogurutgafa.is, eða í síma 557 3100.

Í sérútgáfu er mynd af bikarmeisturum KA í karlaflokki á kápunni og sú bók er eingöngu til sölu hjá KA en upplýsingar eru á heimasíðu félagsins,  www.ka.is.

The post Íslensk knattspyrna 2024 appeared first on Fylkir.

Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar.  Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Önnur mál
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 14. september 2026
Úrslitastund á Laugardalsvelli gegn Þrótturum 🧡
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 24. ágúst 2026
Síldarveisla Fylkis fyrir síðasta heimaleikinn!
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 20. ágúst 2026
Skráning er hafin fyrir nýtt tímabil hjá Betri borgurum
Eftir Jakob Fylkir • 26. júlí 2026
Skrifar undir samning út tímabilið 2026
Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður • 15. júní 2026
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar […] The post Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis FC á appelsínugulum lituðum bakgrunni með svörtum og hvítum hringlaga merki.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […] The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.
Fimm manns sitja fyrir innandyra við appelsínugulan borða í björtu herbergi
Eftir Hörður • 4. júní 2026
Aðalfundurinn fór fram á afmælisdegi félagsins 28.maí síðastliðinn en það eru 59 ár liðin frá því félagið var stofnað.  Dagskráin var hefðbundin nema það var boðið upp á veitingar í […] The post Björn Gíslason endurkjörinn formaður félagsins appeared first on Fylkir.
Show More