Spilað verður á Tekk vellinum í Árbænum næstu árin
Kristján Gylfi • 13. apríl 2025

Spilað verður á Tekk vellinum í Árbænum næstu árin

Knattspyrnudeild Fylkis og Tekk húsgagnaverslun kynna með stolti útvíkkað samstarf sem meðal annars felur í sér að aðalvöllur Fylkis mun verða nefndur Tekk völlurinn næstu árin.

Tekk, sem hefur á undanförnum árum verið einn af aðalstyrktaraðilum Knattspyrnudeildar Fylkis, tekur nú að sér enn stærra hlutverk gagnvart Fylki en verið hefur.

Tekk var stofnað árið 1998 af bræðrunum Eyþóri og Finni Kolbeinssonum og eiginkonum þeirra, Elínu Maríu Sigurjónsdóttur og Telmu Birgisdóttur – fyrst undir nafninu Tekk Vöruhús. Núverandi eigendur Tekk eru hjónin Telma Birgisdóttir og Finnur Kolbeinsson. Finnur er uppalinn Árbæingur og lék á sínum tíma hátt í 300 leiki fyrir meistaraflokk Fylkis og var sigursæll fyrirliði Fylkis um margra ára skeið.

Ragnar Páll Bjarnason, formaður Knattspyrnudeildar Fylkis: „Við höfum átt frábært samstarf við Harald Leifsson og félaga hjá Würth á undanförnum árum sem við þökkum kærlega fyrir. Á sama tíma er það gríðarlega ánægjulegt að kynna enn víðtækara samstarf við Telmu og Finn hjá Tekk. Við erum sérlega stolt af því að þétta samstarfið við Árbæinga og Fylkisfólk eins og þau. Við leyfum okkur að taka þessu sem staðfestingu á því góða starfi sem fram fer á vegum Knattspyrnudeildar Fylkis.“

Telma Birgisdóttir, eigandi Tekk: „Hjartað í Árbæ, Selás, Ártúnsholti og Norðlingaholti slær með Fylki og það er ekki annað hægt en að hrífast með. Við bjóðum allt Fylkisfólk sérlega velkomið í verslun okkar í Skógarlindinni þar sem við heitum góðum móttökum.“

Finnur Kolbeinsson, eigandi Tekk: „Við hjá Tekk höfum í langan tíma stutt með mikilli gleði við starfsemi Knattspyrnudeildar Fylkis. Ég er alinn upp í Fylki og hér er okkur að gefast tækifæri til að styðja við öflugt og ábyrgt starf Fylkis fyrir hverfið ásamt því að vekja athygli allra landsmanna á Tekk og þeim fjölbreyttu vörum sem við hjá Tekk höfum upp á að bjóða.“

Myndir: Hulda Margrét. http://huldamargret.is

Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður 15. júní 2026
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar […] The post Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis FC á appelsínugulum lituðum bakgrunni með svörtum og hvítum hringlaga merki.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […] The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.
Fimm manns sitja fyrir innandyra við appelsínugulan borða í björtu herbergi
Eftir Hörður 4. júní 2026
Aðalfundurinn fór fram á afmælisdegi félagsins 28.maí síðastliðinn en það eru 59 ár liðin frá því félagið var stofnað.  Dagskráin var hefðbundin nema það var boðið upp á veitingar í […] The post Björn Gíslason endurkjörinn formaður félagsins appeared first on Fylkir.
FyLkir merkið á appelsínugulum til svörtum litbrigðum bakgrunni
Eftir Hörður 5. maí 2026
Nýverið sendi knattspyrnudeild Fylkis valkröfu í heimabanka flestra íbúa í 110 þar sem við óskum eftir styrkjum til að lyfta öllu starfi félagsins áfram á hærra stig og skiptir þar engu […] The post Ákall til 110 – Enginn getur allt en allir geta eitthvað. appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður 4. maí 2026
Aðalfundur íþróttafélagsins Fylkis verður haldinn fimmtudaginn 28.maí 2026 kl. 19:30 í samkomusal Fylkishallar Dagskrá: -Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins -Önnur mál Aðalstjórn Fylkis The post Aðalfundur Fylkis appeared first on Fylkir.
Fjórir einstaklingar sitja fyrir aftan appelsínugult FYLKIR borð á blaðamannafundi eða fundi
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 30. apríl 2026
Reykjavíkurborg og Íþaka fasteignafélag skrifuðu í dag undir nýjan samning um Fylkisselið í Norðlingaholti. Fylkisselið hýsir í dag aðstöðu fimleikadeildar, karatedeildar og rafíþróttadeildar Fylkis. Samningurinn kveður meðal annars á um […] The post Fylkisselið stækkar: Nýr samningur undirritaður appeared first on Fylkir.
Maður stendur með krosslagðar hendur fyrir framan appelsínugulan bakgrunn með stórum texta sem segir „2 DAGAR“ og „LENGU DELDIN“.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 22. apríl 2026
Nú í hádeginu fór fram opinber fundur Lengjudeildarinnar þar sem farið var yfir komandi tímabil og m.a. spá formanna, þjálfara og fyrirliða liða í Lengjudeild karla var kynnt. Þar var […] The post Fylki spáð efsta sæti í Lengjudeildinni appeared first on Fylkir.
Dagatalstákn sem sýnir 17. júlí í rauðum og gráum lit.
Eftir Hörður 16. apríl 2026
Boðað er til aðalfundar Fylkis körfuboltadeildar. 📅 Dagsetning: Fimmtudagur 30. apríl 🕒 Tími: Kl. 20:00 📍 Staður: Fylkishöll Dagskrá fundar: Skýrsla stjórnar Kosning stjórnar Ákvörðun um æfingagjöld Önnur mál Öllum félagsmönnum, iðkendum og áhugafólki um starf […] The post Aðalfundur körfuknattleiksdeildar appeared first on Fylkir.
Veggspjald HÍR TIL AÐ VERA með manni í rauðum og svörtum treyju á appelsínugulum og svörtum bakgrunni.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 12. febrúar 2026
Máni Austmann Hilmarsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fylkis og mun leika áfram með okkur út keppnistímabilið 2026 hið minnsta. Máni kom til Fylkis frá Fjölni á miðju tímabili […] The post Máni Austmann áfram í appelsínugulu! appeared first on Fylkir.
Show More