
Aron Snær framlengir til 2028
By Jakob Örn Heiðarsson • 15. nóvember 2026
Aron Snær Guðbjörnsson hefur skrifað undir nýjan samning við Fylki til næstu tveggja ára eða út keppnistímabilið 2028.
Aron lék stórt hlutverk í baráttuglöðu liði Fylkis í sumar sem var hársbreidd frá því að komast upp í Bestu deildina sem og í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Hann lék 20 leiki í sumar og skoraði tvö mörk og lét almennt vel til sín taka í þeim leikjum sem hann spilaði.
🗣️ Jón Þór, formaður meistaraflokksráð karla
Árbærinn hefur tekið enn meira ástfóstri við Aron Snæ eftir sumarið og hann er í miklum metum hjá stuðningsmönnum sem baráttuglaður leikmaður með frábæra útgeislun á vellinum. Hann er með kraftmikinn leikstíl sem stuðningsmennirnir elska. Við erum gríðarlega ánægð að sjá Aron áfram í appelsínugulu og hlökkum til að sjá hann á vellinum sem fyrst aftur með liðinu.
Við hlökkum til að fylgjast með áframhaldinu hjá Aroni í appelsínugulu treyjunni og sjá hann halda áfram að leggja sitt af mörkum til liðsins á næstu 2 tímabilum.


Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir









