
Ísabella Júlía framlengir um 2 ár
By Jakob Örn Heiðarsson • 18. nóvember 2026
Ísabella Júlía Óskarsdóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fylkis og verður áfram í herbúðum félagsins út keppnistímabilið 2028 🧡
Ísabella er 21 árs markvörður sem gekk til liðs við Fylki fyrir keppnistímabilið 2026. Hún lék alls níu leiki á milli stanganna á nýliðnu tímabili og átti sinn þátt í því að tryggja liðinu sæti í Lengjudeildinni á næsta ári. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ísabella þegar leikið 103 meistaraflokksleiki á ferli sínum.
Það er virkilega ánægjulegt fyrir félagið að tryggja áframhaldandi krafta Ísabellu og bindum við miklar vonir við að hún muni leika mikilvægt hlutverk í verkefnum liðsins á komandi tímabilum.
Við óskum Ísabellu til hamingju með nýja samninginn og hlökkum til samstarfsins áfram!
Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir









