Árni Freyr verður þjálfari Fylkis
Sigfús Örn Guðmundsson • 16. október 2024

Knattspyrnudeild Fylkis hefur ráðið Árna Frey Guðnason sem þjálfara karlaliðs Fylkis til næstu þriggja ára. Árni Freyr, sem mun hefja störf í næsta mánuði, er Fylkisfólki vel kunnur eftir að hafa leikið með Fylkisliðinu við góðan orðstír keppnistímabilin 2012 og 2013. Alls lék Árni Freyr tæpa 100 leiki í tveimur efstu deildum knattspyrnunnar á Íslandi á sínum tíma og í þeim leikjum skoraði hann alls 38 mörk.

Árni sem er 38 ára gamall hefur undanfarin ár verið þjálfari meistaraflokk s karla hjá ÍR og náð þar mjög eftirtektarverð um árang ri . Haustið 2023 ávann ÍR sér keppnisrétt í Lengjudeildinni. ÍR liðið endaði í fimmta sæti Lengjudeildarinnar núna í sumar og ávann sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni um laust sæti í Bestu deildinni þar sem liðið féll úr leik fyrir liði Keflavíkur. Áður en Árni tók að sér þjálfun hjá ÍR hafði hann um árabil verið yfirþjálfari yngri flokka hjá uppeldisfélagi sínu, FH.  

Björn Viðar Ásbjörnssson, formaður meistarflokksráðs karla hjá Fylki: Við bindum miklar væntingar til starfa Árna Freys fyrir Fylki. Það er engin launung að niðurstaða þess tímabils sem senn er lokið er okkur Fylkisfólki mikil vonbrigði en á sama tíma erum við staðráðin í að snúa bökum saman og byggja upp öflugt Fylkislið á þeim góða grunni sem er til staðar í Árbænum. Við munum draga lærdóm af því sem liðið er og horfum spennt til framtíðar .  

Árni Freyr Guðnason, nýráðinn þjálfari Fylkis: Það er mikill heiður fyrir mig að snúa aftur til Fylkis og að fá nú tækifæri til að þjálfa Fylkisliðið. Mitt mat er að það sé mjög mikið spunnið í liðið og með vinnusemi og metnað að leiðarljósi er ég sannfærður um að við munum skila góðri frammistöðu í framtíðinni. Hér í Árbænum eru aðstæður til fyrirmyndar og ég hlakka til að hefja störf fyrir Fylki.  

  Knattspyrnudeild Fylkis þakkar Knattspyrnudeild ÍR fyrir fagmannleg samskipti í tengslum við þessa ráðningu.

Á myndinni, frá vinstri, eru Björn Viðar Ásbjörnsson formaður meistaraflokksráðs karla, Árni Freyr Guðnason og Ragnar Páll Bjarnason, formaður knattspyrnudeildar.

The post Árni Freyr verður þjálfari Fylkis appeared first on Fylkir.

Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður 15. júní 2026
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar […] The post Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis FC á appelsínugulum lituðum bakgrunni með svörtum og hvítum hringlaga merki.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […] The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.
Fimm manns sitja fyrir innandyra við appelsínugulan borða í björtu herbergi
Eftir Hörður 4. júní 2026
Aðalfundurinn fór fram á afmælisdegi félagsins 28.maí síðastliðinn en það eru 59 ár liðin frá því félagið var stofnað.  Dagskráin var hefðbundin nema það var boðið upp á veitingar í […] The post Björn Gíslason endurkjörinn formaður félagsins appeared first on Fylkir.
FyLkir merkið á appelsínugulum til svörtum litbrigðum bakgrunni
Eftir Hörður 5. maí 2026
Nýverið sendi knattspyrnudeild Fylkis valkröfu í heimabanka flestra íbúa í 110 þar sem við óskum eftir styrkjum til að lyfta öllu starfi félagsins áfram á hærra stig og skiptir þar engu […] The post Ákall til 110 – Enginn getur allt en allir geta eitthvað. appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður 4. maí 2026
Aðalfundur íþróttafélagsins Fylkis verður haldinn fimmtudaginn 28.maí 2026 kl. 19:30 í samkomusal Fylkishallar Dagskrá: -Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins -Önnur mál Aðalstjórn Fylkis The post Aðalfundur Fylkis appeared first on Fylkir.
Fjórir einstaklingar sitja fyrir aftan appelsínugult FYLKIR borð á blaðamannafundi eða fundi
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 30. apríl 2026
Reykjavíkurborg og Íþaka fasteignafélag skrifuðu í dag undir nýjan samning um Fylkisselið í Norðlingaholti. Fylkisselið hýsir í dag aðstöðu fimleikadeildar, karatedeildar og rafíþróttadeildar Fylkis. Samningurinn kveður meðal annars á um […] The post Fylkisselið stækkar: Nýr samningur undirritaður appeared first on Fylkir.
Maður stendur með krosslagðar hendur fyrir framan appelsínugulan bakgrunn með stórum texta sem segir „2 DAGAR“ og „LENGU DELDIN“.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 22. apríl 2026
Nú í hádeginu fór fram opinber fundur Lengjudeildarinnar þar sem farið var yfir komandi tímabil og m.a. spá formanna, þjálfara og fyrirliða liða í Lengjudeild karla var kynnt. Þar var […] The post Fylki spáð efsta sæti í Lengjudeildinni appeared first on Fylkir.
Dagatalstákn sem sýnir 17. júlí í rauðum og gráum lit.
Eftir Hörður 16. apríl 2026
Boðað er til aðalfundar Fylkis körfuboltadeildar. 📅 Dagsetning: Fimmtudagur 30. apríl 🕒 Tími: Kl. 20:00 📍 Staður: Fylkishöll Dagskrá fundar: Skýrsla stjórnar Kosning stjórnar Ákvörðun um æfingagjöld Önnur mál Öllum félagsmönnum, iðkendum og áhugafólki um starf […] The post Aðalfundur körfuknattleiksdeildar appeared first on Fylkir.
Veggspjald HÍR TIL AÐ VERA með manni í rauðum og svörtum treyju á appelsínugulum og svörtum bakgrunni.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 12. febrúar 2026
Máni Austmann Hilmarsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Fylkis og mun leika áfram með okkur út keppnistímabilið 2026 hið minnsta. Máni kom til Fylkis frá Fjölni á miðju tímabili […] The post Máni Austmann áfram í appelsínugulu! appeared first on Fylkir.
Show More