Nýtt starfsár, kynningar og aðalfundur knattspyrnudeildar á miðvikudag
Sigfús Örn Guðmundsson • 28. október 2024

Árleg síldarveisla Fylkis fyrir síðasta heimaleikinn hjá strákunum 20. október var vel sótt og gekk mjög vel fyrir sig. Við þökkum þeim sem mættu. Okkar menn léku svo síðasta leik tímabilsins við skrautlegar aðstæður á Ísafirði sl. laugardag, þar sem öflug frammistaða liðsheildarinnar skilaði öruggum 1-3 sigri.

Þar með lauk formlega tímabilinu 2024 og eins og áður hefur komið fram er nýtt starfsár nú þegar hafið og undirbúningur fyrir komandi tímabil byrjar af krafti.

Næstkomandi miðvikudagskvöld er boðað til fundar þar sem nýráðnir þjálfarar meistaraflokka Fylkis, þeir Árni Freyr Guðnason og Bjarni Þórður Halldórsson kynna sig, ræða næstu skref og svara spurningum úr sal. Sigurður Þór Reynisson, yfirþjálfari knattspynudeildar og Steinar Leó Gunnarsson, yfirþjálfari yngstu flokka verða einnig viðstaddir og eru reiðubúnir til að grípa spurningar úr sal eins og þarf.

Staður: Fylkishöll.

Stund: Kl 19:30, miðvikudaginn 30. október.

Dagskrá fundarins:

  • Hefðbundin störf aðalfundar Knattspyrnudeildar Fylkis. Rifjað er upp að skv . reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins er megin tilgangur fundarins að kjósa stjórn deildarinnar og fundi er síðan frestað fram á vormánuði næsta árs. Fimm einstaklingar hafa tilkynnt um framboð sitt til stjórnar: Ragnar Páll Bjarnason (formaður), Edda Sif Sigurðardóttir, Haraldur Úlfarsson, Hjördís Jóhannesdóttir og Valur Ragnarsson.
  • Bjarni Þórður Halldórsson, þjálfari meistaraflokks kvenna
  • Árni Freyr Guðnason, þjálfari meistaraflokks karla

Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar á meðan fundi stendur og áætlaður fundartími er um ein klukkstund.

Við skorum á allt Fylkisfólk að mæta á fundinn, hitta þjálfarana okkar og láta í sér heyra. Nýtt starfsár er hafið og við ætlum að bretta upp ermar og halda áfram starfi Knattspynudeildar Fylkis af fullum krafti.

Munum: GLEÐI, VIRÐING, METNAÐUR!

Áfram Fylkir,

Stjórn Knattspyrnudeildar

 

Eftir Jakob Örn Heiðarsson 24. ágúst 2026
Síldarveisla Fylkis fyrir síðasta heimaleikinn!
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 20. ágúst 2026
Skráning er hafin fyrir nýtt tímabil hjá Betri borgurum
Eftir Jakob Fylkir 26. júlí 2026
Skrifar undir samning út tímabilið 2026
Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður 15. júní 2026
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar […] The post Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis FC á appelsínugulum lituðum bakgrunni með svörtum og hvítum hringlaga merki.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […] The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.
Fimm manns sitja fyrir innandyra við appelsínugulan borða í björtu herbergi
Eftir Hörður 4. júní 2026
Aðalfundurinn fór fram á afmælisdegi félagsins 28.maí síðastliðinn en það eru 59 ár liðin frá því félagið var stofnað.  Dagskráin var hefðbundin nema það var boðið upp á veitingar í […] The post Björn Gíslason endurkjörinn formaður félagsins appeared first on Fylkir.
FyLkir merkið á appelsínugulum til svörtum litbrigðum bakgrunni
Eftir Hörður 5. maí 2026
Nýverið sendi knattspyrnudeild Fylkis valkröfu í heimabanka flestra íbúa í 110 þar sem við óskum eftir styrkjum til að lyfta öllu starfi félagsins áfram á hærra stig og skiptir þar engu […] The post Ákall til 110 – Enginn getur allt en allir geta eitthvað. appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður 4. maí 2026
Aðalfundur íþróttafélagsins Fylkis verður haldinn fimmtudaginn 28.maí 2026 kl. 19:30 í samkomusal Fylkishallar Dagskrá: -Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins -Önnur mál Aðalstjórn Fylkis The post Aðalfundur Fylkis appeared first on Fylkir.
Fjórir einstaklingar sitja fyrir aftan appelsínugult FYLKIR borð á blaðamannafundi eða fundi
Eftir Jakob Örn Heiðarsson 30. apríl 2026
Reykjavíkurborg og Íþaka fasteignafélag skrifuðu í dag undir nýjan samning um Fylkisselið í Norðlingaholti. Fylkisselið hýsir í dag aðstöðu fimleikadeildar, karatedeildar og rafíþróttadeildar Fylkis. Samningurinn kveður meðal annars á um […] The post Fylkisselið stækkar: Nýr samningur undirritaður appeared first on Fylkir.
Show More