Björn Gíslason endurkjörinn formaður félagsins
Hörður • 4. júní 2026

Aðalfundurinn fór fram á afmælisdegi félagsins 28.maí síðastliðinn en það eru 59 ár liðin frá því félagið var stofnað.  Dagskráin var hefðbundin nema það var boðið upp á veitingar í tilefni dagsins.

Björn Gíslason var endurkjörinn formaður félagsins næsta árið en ný aðalstjórn er skipuð þeim Atla Atlasyni, Guðnýju Erlu Jakobsdóttur, Jóni Birgi Eiríkssyni og Kristni Eiríkssyni sem voru einnig í fráfarandi stjórn.  Ný inn í stjórn komu svo Anna Linda Magnúsdóttir og Davíð Gunnarsson.   Hulda Birna Baldursdóttir og Erna Bryndís Einarsdóttir gáfu ekki kost á sér áfram og er þeim færðar bestu þakkir fyrir gott starf í þágu félagsins.

Stjórnir deilda félagsins eru svo skipaðar með þessum hætti
Blakdeild Fylkis
Emelía Eiríksdóttir formaður
Brynja Ísey Viktorsdóttir
Guðmundur Jónsson
Gunnar Gunnarsson
Margrét Brandsdóttir
Ólöf Björg Þórðardóttir

Fimleikadeild Fylkis
Guðrún Ósk Jakobsdóttir formaður
Guðný Erla Jakobsdóttir
István Oláh
Judith Traustadóttir
Rebekka Ósk Heiðarsdóttir

Handknattleiksdeild Fylkis
Guðrún Inga Sívertsen formaður
Anton Ellertsson
Hrönn Vilhjálmsdóttir

Karatedeild Fylkis
Ólöf Helgadóttir – Formaður
Björn Arnar Kárason
Iveta Ivanova
Ísold Klara
Ólafur Engilbert Árnason

Knattspyrnudeild Fylkis
Ragnar Páll Bjarnason formaður
Davíð Gunnarsson
Edda Sif Sigurðardóttir
Haraldur Úlfarsson
Hjördís Jóhannesdóttir

Körfuknattleiksdeild Fylkis
Margrét Ingunn Jónasdóttir formaður
Helgi Hrafn Ólafsson
Rakel Þorsteinsdóttir

Rafíþróttadeild Fylkis
Anton Snær Guðjónsson formaður
Ágúst Bjarki Davíðsson
Aron Ólafsson
Patrekur Gunnlaugsson

 

Sex manns sitja fyrir innandyra við hliðina á appelsínugulum borða í björtum herbergi með stórum gluggum.

Ný aðalstjórn

Frá vinstri Kristinn Eiríksson, Atli Atlason, Anna Linda Magnúsdóttir, Björn Gíslason, Guðný Erla Jakobsdóttir og Davíð Gunnarsson.  Á myndina vantar Jón Birgi Eiríksson.

 

Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 5. október 2026
Þann 26. september fór fram þriðja grand prix mót ársins þar sem Fylkir átti fjóra keppendur á mótinu sem að komu, sáu og sigruðu! Við erum afskaplega stolt af þessum drengjum og svo gaman að fá að fylgjast með þeim! Daniel - kumite 11 ára pilta 🥇 Gunnar - kumite 12 ára pilta 🥇 Simon - kumite 15 ára pilta 🥇 Saker - kumite 16-17 ára pilta 🥇 Frábær árangur hjá karatedeild Fylkis og óskum við iðkendum innilega til hamingju með verðlaunin sín.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 1. október 2026
Aðalfundur knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 29.október næstkomandi kl 19:30 í samkomusal Fylkishallar.  Þau sem gefa kost á sér í stjórn skulu tilkynna um það með minnst 7 daga fyrirvara með því að senda tölvupóst á fylkir@fylkir.is . Dagskrá: - Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt reglugerð knattspyrnudeildar og lögum félagsins - Önnur mál
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 14. september 2026
Úrslitastund á Laugardalsvelli gegn Þrótturum 🧡
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 24. ágúst 2026
Síldarveisla Fylkis fyrir síðasta heimaleikinn!
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 20. ágúst 2026
Skráning er hafin fyrir nýtt tímabil hjá Betri borgurum
Eftir Jakob Fylkir • 26. júlí 2026
Skrifar undir samning út tímabilið 2026
Tveir menn taka í hendur fyrir framan appelsínugulan og svartan fána FYKIR félagsins.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 30. júní 2026
Gengið hefur verið frá samningi við Víði Sigurðsson um gerð 60 ára sögu félagsins. Vinnan hófst reyndar fyrir nokkrum árum þar sem Kjartan Gunnar Kjartansson sagnfræðingur hélt um pennan en […] The post Víðir Sigurðsson skrifar sögu Fylkis í 60 ár appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis á appelsínugulum bakgrunni með svörtum hring og hvítum S-laga mynstri.
Eftir Hörður • 15. júní 2026
Í kjölfar leiks Fylkis og Gróttu í 8 liða úrslitum Mjólkurbikars karla síðasta laugardag vill Fylkir taka það skýrt fram, að sú hegðun sem hluti stuðningsmanna sýndi af sér þar […] The post Yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Fylkis appeared first on Fylkir.
Merki Fylkis FC á appelsínugulum lituðum bakgrunni með svörtum og hvítum hringlaga merki.
Eftir Jakob Örn Heiðarsson • 9. júní 2026
Fylkir vill vera félag þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna allt starf. Til þess þurfum við reglulega að hlusta á þá sem þekkja starfsemi félagsins best – iðkendur og […] The post Þjónustukönnun Fylkis – rödd iðkenda og foreldra appeared first on Fylkir.
FyLkir merkið á appelsínugulum til svörtum litbrigðum bakgrunni
Eftir Hörður • 5. maí 2026
Nýverið sendi knattspyrnudeild Fylkis valkröfu í heimabanka flestra íbúa í 110 þar sem við óskum eftir styrkjum til að lyfta öllu starfi félagsins áfram á hærra stig og skiptir þar engu […] The post Ákall til 110 – Enginn getur allt en allir geta eitthvað. appeared first on Fylkir.
Show More