
Lokahóf meistaraflokka karla og kvenna
By Jakob Örn Heiðarsson • 20. nóvember 2026
Tímabil 2026 gert upp
Á dögunum komu leikmenn, þjálfarar, starfsfólk, sjálfboðaliðar og stjórnarfólk knattspyrnudeildar Fylkis saman í veislusal félagsins þar sem tímabilið 2026 var gert upp með glæsibrag. Á lokahófinu var litið yfir farinn veg, þakkað fyrir gott starf og veittar viðurkenningar til þeirra leikmanna sem sköruðu fram úr á tímabilinu, auk leikmanna sem náð hafa ákveðnum leikjafjölda fyrir félagið.
Glæsilegt sumar hjá báðum liðum
Tímabilið 2026 var viðburðaríkt og árangur beggja meistaraflokka góður, þrátt fyrir nokkrar sveiflur yfir sumartímann.
Meistaraflokkur kvenna varð Lengjubikarmeistari í vor, komst í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins og hafnaði í 2. sæti 2. deildar kvenna. Með þeim árangri tryggði liðið sér sæti í Lengjudeild kvenna á næsta tímabili. Meistaraflokkur karla varð einnig Lengjubikarmeistari í vor, komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins og hafnaði í 3. sæti Lengjudeildar karla. Liðið var þar að auki hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í Bestu deildinni.
Þrátt fyrir að alltaf sé svigrúm til bætinga getum við í Árbænum litið stolt til baka á stórkostlegt sumar. Það var ekki síst ánægjulegt að sjá tekk-völlinn lifna við og stuðning Árbæinga aukast jafnt og þétt. Mæting á leiki liðanna var með því besta sem gerðist í knattspyrnunni á Íslandi í sumar, þrátt fyrir að karlaliðið hafi leikið í Lengjudeild og kvennaliðið í 2.deild. Stuðningur skiptir gríðarlegu máli og aðsóknin í sumar gefur góð fyrirheit fyrir komandi tímabil. Við hlökkum mikið til þess sem fram undan er!
Á lokahófinu voru veittar viðurkenningar til bestu og efnilegustu leikmanna beggja meistaraflokka, en leikmenn liðanna kusu sjálfir verðlaunahafana.
Bestu leikmenn meistaraflokka karla og kvenna
Birkir Eyþórsson og Guðmundur Tyrfingsson hlutu jafn mörg atkvæði í kjörinu á leikmanni ársins hjá karlaliði Fylkis og deila því nafnbótinni. Það var svo Birna Kristín Eiríksdóttir sem kjörin var leikmaður ársins hjá kvennaliði Fylkis.
Birkir lék alls 32 leiki fyrir Fylki á tímabilinu og skoraði í þeim fimm mörk. Hann var einn af burðarásum liðsins á miðjunni, þar sem hann stjórnaði spilinu, lagði grunninn að sóknarleiknum og gegndi jafnframt mikilvægu hlutverki í varnarleiknum. Þá fór Guðmundur á kostum í sóknarleiknum og skoraði alls 24 mörk í 36 leikjum. Þar á meðal voru afar mikilvæg mörk í umspilsleikjunum gegn HK sem tryggðu Fylki sæti í úrslitaleiknum.
Birna Kristín Eiríksdóttir hlaut nafnbótina leikmaður ársins hjá kvennaliði Fylkis. En hún var einn af lykilleikmönnum liðsins á tímabilinu og var leiðtogi liðsins bæði innan vallar sem utan. Birna skoraði 11 mörk í 25 leikjum og var þar að auki mikilvæg í uppspili liðsins. Hún átti stóran þátt í því að Fylkir hafnaði í 2. sæti 2. deildar og tryggði sér þar með sæti á ný í Lengjudeild kvenna á næsta tímabili.

Efnilegustu leikmenn meistaraflokka karla og kvenna
Magnús Daði Ottsen, fæddur árið 2010, var valinn efnilegasti leikmaður karlaliðs Fylkis á tímabilinu. Hann kom við sögu í 21 leik á tímabilinu þrátt fyrir að hafa misst af um tveimur mánuðum vegna meiðsla í sumar. Þrátt fyrir það lét hann mikið að sér kveða og gegndi mikilvægu hlutverki í liðinu.
Karen Dís Vigfúsdóttir var valin efnilegasti leikmaður kvennaliðs Fylkis. Hún átti afar gott tímabil og var mikilvægur leikmaður í liði Fylkis, þar sem hún kom við sögu í alls 27 leikjum. Með góðri frammistöðu og mikilvægu framlagi sínu til liðsins sýndi hún svo sannarlega hversu efnilegur leikmaður hún er.

Viðurkenningar fyrir leikjafjölda
Einnig voru heiðraðir leikmenn sem hafa náð áföngum í leikjafjölda með meistaraflokkum félagsins:
· 300 leikir: Orri Sveinn Segatta
· 150 leikir: Nikulás Val Gunnarsson og Arnór Breki Ásþórsson
· 100 leikir: Kolfinna Baldursdóttir, Signý Lára Bjarnason og Birna Kristín Eiríksdóttir
· 50 leikir: Bjarki Steinsen, Birta Margrét Gestsdóttir og Tumi Fannar Gunnarsson
·
Leikmenn allra flokka:
Julía Huld, Karítas Þyrí, Elísabet kaaber, Emelía Káradóttir & Þórhildur Guðjónsdóttir
Við hjá knattspyrnudeild Fylkis viljum að lokum þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg í sumar og hjálpuðu til við að gera tímabilið að veruleika. Þá þökkum við öllum leikmönnum fyrir þeirra framlag innan sem utan vallar og fyrir að skrifa nýjan kafla í sögu félagsins.
Takk fyrir frábært sumar, við sjáumst á vellinum árið 2027! 🧡
Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir









