
Steven Lennon ráðinn til Fylkis
By Jakob Örn Heiðarsson • 20. nóvember 2026
Skrifar undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild
Knattspyrnugoðsögnin Steven Lennon hefur verið ráðinn til Fylkis og skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Lennon mun gegna hlutverki aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla, þar sem hann mun starfa við hlið Arons Baldvins Þórðarsonar.
Auk þess mun Lennon sinna afreksþjálfun hjá félaginu og gegna hlutverki svokallaðs transition-þjálfara sem ætlað er að undirbúa og auðvelda leikmönnum 2. flokks að taka skrefið upp í meistaraflokk. Markmiðið er að þetta skili fleiri leikmönnum yngri flokka upp í meistaraflokk og að þeir séu betur undirbúnir þegar þangað er komið.
Stormsveipinn Steven Lennon þarf vart að kynna fótboltaáhugafólki og telst hann í flokki þeirra albestu erlendu leikmanna sem hér hafa leikið í gegnum tíðina eftir óstöðvandi markaskorun fyrir m.a. Fram og FH. Hann kemur upprunalega úr knattspyrnuakademíu Rangers í Skotlandi en lék einnig með liðum á Englandi, Írlandi og í Noregi áður en hann fluttist alfarið til Íslands þar sem hann hefur komið sér vel fyrir.
Við bjóðum Steven Lennon hjartanlega velkominn í Árbæinn! 🧡


Skráðu þig á póstlista Fylkis
Skráðu þig og fáðu allar helstu fréttir, auglýsingar beint í æð
Contact Us
We will get back to you as soon as possible.
Please try again later.
Deildu þessari frétt
Allar fréttir









